Freisting
Ósakoli – ný nytjategund úr hafinu

Stjórnarmenn Biopol og framkvæmdastjóri ásamt starfsmönnum Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar
Veiðimálastofnun og BioPol Sjávarlíftæknisetur á Skagaströnd hafa ákveðið að leggja saman krafta sína hvað varðar rannsóknir tengdar hafinu, auðlindum sjávar og ósasvæðum fallvatna.
Samvinna verður um rannsóknir á sviði sjávarlíffræði, fiskavistfræði, auðlindanýtingar, sjávarlíftækni og tengdra sviða.
Samstarfssamningur því til staðfestingar var undirritaður mánudaginn 19. nóvember.
Meginmarkmið samningsins er að efla samstarf, þekkingu og tækniþróun aðila á fyrrgreindum rannsóknasviðum, hvort sem um ræðir lífverur ferskvatns eða sjávar. Sérstaklega er í því ljósi horft til rannsókna á strand- og ósasvæðum við Húnaflóa og í Skagafirði.
Að undanförnu hafa BioPol ehf og Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar á Sauðárkróki ásamt Háskólanum á Akureyri verið að skilgreina og fjármagna sameiginlega ný rannsóknaverkefni. Rannsóknir á hrognkelsum og mikilvægi ósasvæða fyrir viðkomu fiskseiða í Húnaflóa og Skagafirði fara af stað nú í vor með sameiginlegri aðkomu allra þessara aðila.
BioPol ehf. var stofnað í júlí á þessu ári og er markmiðið að stunda rannsóknir á lífríki sjávar, m.a. í Húnaflóa, rannsóknum í líftækni, nýsköpun og markaðssetningu á afurðum líftækni úr sjávarlífverum og fræðsla á þessum sviðum. Norðurlandsdeild Veiðimálastofnunar hefur haft aðsetur í Skagafirði frá 1984 og sinnt rannsóknum á lífríki í ám og vötnum ásamt ráðgjöf um nýtingu fiskistofna. Þá hefur deildin unnið að rannsóknum á lífríki ósasvæða vatnsfalla um land allt undanfarin ár þar sem mætast bæði ferskvatns og sjávartegundir. Eitt stærsta verkefnið á því sviði eru rannsóknir á landnámi og nýtingarmöguleikum nýrrar kolategundar við Ísland, ósakola/flundru, sem lifir bæði í sjó og fersku vatni.
Samstarfssamningurinn var undirritaður á skrifstofu BioPol ehf á Skagaströnd. Viðstaddir voru starfsfólk Norðurlandsdeildar Veiðimálastofnunar og stjórn BioPol ehf.
Samninginn undirrituðu fyrir hönd Veiðmálastofnunar, Sigurður Guðjónsson forstjóri og Bjarni Jónsson deildarstjóri Norðurlandsdeildar en fyrir BioPol ehf. Adolf H. Berndsen, stjórnarformaður, og Halldór G. Ólafsson framkvæmdastjóri.
Greint frá á vefsíðu Veiðimálastofnun
Mynd: veidimal.is | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt5 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt4 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag





