Markaðurinn
Orka hlýtur alþjóðleg markaðsverðlaun

Orka og starfsfólk Cirkus. Á myndinni eru Þorvaldur Sævar Gunnarsson, Jens Nørgaard-Offersen, Guðlaugur Aðalsteinsson og Haukur Viðar Alfreðsson.
Íslenski orkudrykkurinn Orka og auglýsingastofan Cirkus unnu til verðlauna sem „Breakout Brand“ á AdAge-verðlaunahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum, en verðlaunin voru veitt í flokknum „ROI – Work that Works“, sem snýr að árangurstengdri markaðsvinnu.
Þrjár bragðtegundir Orku voru í sviðsljósinu á hátíðinni. Orange Ink, sem var innblásin húðflúrmenningunni, Engill, sem unnin var í samstarfi við tónlistarmanninn Flona og Reykjavik Roses, sem þróuð var með samnefndu fatamerki.
Fjöldi vörumerkja eiga fulltrúa á hátíðinni og má þarn nefna McDonald’s, Levi’s, Paramount, Dove, United Airlines, Hasbro og Chicago Bulls.
AdAge er eitt virtasta fagtímarit auglýsingageirans, en það hefur verið gefið út síðan árið 1930. Árlega veitir tímaritið viðurkenningar til þeirra sem þykja skara fram úr á sviði markaðsmála, tækni og afþreyingar og því mikill heiður fyrir Ölgerðina að hljóta þessi eftirsóttu verðlaun.
Nánar má lesa um verðlaunin hér.
„Verðlaunin eru mikill heiður fyrir okkur og þennan upphaflega Orku-drykk okkar Íslendinga. Meðbyrinn með Orku hefur vaxið jafnt og þétt og söluaukningin sýnir það svart á hvítu. Orka er að vaxa um 45% á milli ára, ofan á 66% vöxt árið á undan og það segir allt um þær góðu viðtökur sem drykkurinn er að fá.
Þá er vörumerkið orðið einskonar sköpunarvettvangur ólíks listafólks sem kemur með beinum hætti að þróun drykkjanna, umbúða og Orku-heimsins. Það er fjölmargt ungt og efnilegt listafólk sem á þessi verðlaun með okkur, áfram íslensk list og grasrót!’’
segir Davíð Sigurðsson, orkumálastjóri hjá Ölgerðinni.
„Það er ótrúlega ánægjulegt að sjá íslenskt vörumerki ná svo langt á alþjóðlegum vettvangi,“
segir Guðlaugur Aðalsteinsson hjá Cirkus.
„Við erum stolt af samstarfinu við Orku og því hvernig hugmyndir sem spretta úr íslenskri menningu og sköpun geta fengið alþjóðlega viðurkenningu.“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel23 klukkustundir síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun






