Freisting
Nýr staður Austur Steikhús
Prepp eldhúsið
Staður þessi er í Austurstræti í húsinu sem er vinstra megin við Jakobsen húsinu þar sem la Primavera er. Er komið er inn er stigi upp og beint á móti á vinstri hönd eru borð og á hægri hönd er barinn og sófar, inn af er aðalborðsalurinn og þá fellur maður algerlega í stafi þvílíkt flott hönnun.
|
|
|
Þegar við vorum sestir Crew 1 frá Freistingu fékk maður á tilfinninguna að maður sæti á Michelinstjörnu stað í London , litir staðarins eru rautt og svart, einnig er einn veggur speglar og annar veggur grjóthlaðinn ,einnig er spilað svolítið með ljós í salnum og hljóðplötur í loftinu þannig að hljóðið leitar upp en ekkert endurkast niður sem er alveg frábært.
Heita eldhúsið
En þá er það aðalefnið maturinn og hafði ég kíkt á heimasíðu þeirra og séð margt spennandi á seðlinum og nú var komið að því að sannreyna seðillinn,
Og hófst þá óvissuferð undir stjórn Kára yfirmatreiðslumanns.
|
|
Fyrst kom á borðið nýbakað brauð með ólífuolíu og pistaciu mauki ,allt í lagi en mér fannst ólífuolía koma eins og skrattinn úr sauðaleggnum og engan veginn passa inn í flóru staðarins.
Réttur 1.
Humar sumar
Pönnusteiktur humar avacado og limemauk, tomat concasse vinaigrette,
basil froða og grilluð vatnsmelóna.
Mildur réttur þar sem hvert bragð fékk að njóta sín án þess að skemma fyrir öðrum og grillaða melónan hitti í mark .
Réttur 2
Nautatartar létt reyktur
Einiber, þurrkað capers, söl, pikklaður engifer, wasapi krem, sinneps karsi, mjólkurmalt ís
Milt reykjarbragð og eitt það besta piparrótarbragð sem ég hef smakkað, grand
Réttur 3
Nautakinn elduð í 12 tíma
Brasseraður Osso Buco, marineraðar rauðrófur, glasseraðar rauðrófur, rauðrófur og bláostapesto, appelsínur, hundasúrur, anis og svartpipar raspur, rauðrófudjús
Algjör killer er eina sem ég get sagt
Réttur 4
Þorskhnakki nætursaltaður
Hægeldaður þorskhnakki, jarðskokkar, byggrisotto, möndlur, earl grey rúsinur,
greipaldin hnetusmjör
Vá þvílíkt dúndur,the winner takes it all, þurfum við eitthvað að ræða það, hélt ekki
Réttur 5
Nautalund heyreykt
Balsamic glasseraðar gulrætur, karamellerað sellerýrótarmauk,sætar kartöflur með stökku beikon, hey og saltbökuð sellerýrót, laukgljái
Skemmtileg útfærsla, góður ilmur af heyinu, laukgljáinn kröftugur en steikin hefði mátt hvíla í ca. 5 mínútur í viðbót þá hefði hún bráðnað í munni.
Réttur 6
Nautalund „piparsteik“
Kartöflugratin, confit perlulaukur, brúnað grasker, graskermauk, graskerfræ,
flambé piparsósa
Flott steik, vel elduð og djúsí, temmilega pipruð og afburðagóð sósa
Réttur 7
Súkkulaði
Dökk súkkulaðikaka, klassísk súkkulaði brownie, ljós súkkulaði mousse á súkkulaðibotni, súkkulaðisósa
Þessi steinlá og ekki orð um það meir
Réttur 8
Passion Cipirinha
Passion mousse, lime maccarone mohijth sorbet, passion fruit sýróp Cashaca
Himneskur endir á góðu kvöldi, algjört sælgæti
Og það get ég sagt ykkur að eftir að hafa notið þessara veigar þá er ég fastari á minni skoðun sem ég reyfaði hér að ofan með ólívuolíuna eða hver ber fram brauð og smjör á sushi bar.
Grænmetið er sérkapituli á staðnum, ég minnist þess ekki að hafa fengið jafnbragðgott grænmeti út í gegnum matseðilinn, það gott að ég gæti alveg hugsað mér að droppa þar inn og borða bara grænmeti.
Kalda eldhúsið
Desertarnir eru lagaðir af Örvari Birgissyni konditor snillingi, þannig að það ætti ekki að koma neinum á óvart þó svo desertarnir séu nánast ómótstæðilegir.
Þjónustan var á pari og á eflaust eftir að slípast, sumar starfsstúlkur töluðu í höstulegum tón til viðskiptavina staðarins.
Við hjá Freisting.is óskum þeim austursmönnum til hamingju með staðinn og alltaf gaman að koma á stað sem þorir að fara aðra leið heldur en straumurinn.
Myndirnar eru skotnar af fisksalanum ógurlega honum Matta.
Gangi ykkur allt í haginn.
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or1 dagur síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Keppni3 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Frétt5 dagar síðan
Menntun í matvælaiðnaði ekki metin til launa í leikskólum – Kallað eftir endurskoðun