Viðtöl, örfréttir & frumraun
Minnsta jólahlaðborð landsins?
Nú er sá árstími þegar jólahlaðborðin eru haldin á veitingastöðum bæjarins. Hlaðborðin eiga það öll sameiginlegt að vera glæsileg og borðin svigna undan kræsingunum.
Í fyrradag var haldið óvenjulegasta jólahlaðborð ársins þegar Einsi Kaldi í Vestmannaeyjum, bauð félögum sínum upp á jólamat eftir hádegisæfingu Lunch United, og það í karlaklefa íþróttamiðstöðvar Vestmannaeyja, en þetta kemur fram á vefnum Eyjafrettir.is.
Lunch United er fótboltaklúbbur manna sem komnir eru af léttasta skeiði en þeir koma saman tvisvar í viku og sparka bolta sín á milli. Þeir sem til þekkja segja tilþrifin sem sjást á æfingum Lunch United engum öðrum lík en þar sjást hlutir sem sjást vanalega ekki á knattspyrnuvöllum annarsstaðar.
Undanfarið hefur svo skapast sú hefð að þeir sem eiga afmæli, hafa boðið félögum sínum upp á kók og prins að lokinni æfingu. Þegar matreiðslumeistarinn Einar Björn Árnason gekk í raðir Lunch United hlakkaði í einum félaganum sem sá fram á dýrindisveislu þegar Einar Björn, eða Einsi Kaldi myndi eiga afmæli. Einsi tók hann á orðinu, fékk stelpurnar í vinnunni til að dúka upp borð og bauð upp á glæsilegt jólahlaðborð í búningsklefanum eftir leik.
Ingimar Georgsson, kaupmaður í Vöruval slóst í lið með Einsa og bauð upp á jólaöl með kræsingunum þannig að úr varð heljarinnar veisla. Og nú bíður liðsmanna Lunch United það erfiða verkefni að ná af sér aukakílóunum eftir veisluna.
Mynd: Eyjafrettir.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Frétt1 dagur síðanUPPFÆRT: Vagninn fundinn! Matarvagni stolið á meðan eigendur tóku á móti nýfæddri dóttur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn6 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni5 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Markaðurinn4 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn5 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?






