Freisting
Matvörurisarnir eru sáttir við tillögurnar
Forstjórar verslunarfyrirtækjanna Haga og Kaupáss, sem í sameiningu eiga stærstan hluta íslenskra matvöruverslana, eru almennt mjög ánægðir með tillögur nefndar forsætisráðherra um verð á matvörum.
Meðal tillagna er afnám vörugjalds matvara, niðurfelling tolla, samræming virðisaukaskatts og afnám tollverndar af búvöru. Þeir segja nauðsynlegt að höft á innflutningi séu fjarlægð og ofurskattlagning á innfluttar vörur aflögð.
Nefndinni var ætlað að fjalla um hátt matvælaverð og gera tillögur um lækkun þess en sökum ágreinings lagði hún ekki fram beinar tillögur til aðgerða. Formaður hennar, Hallgrímur Snorrason, skilaði Geir H. Haarde forsætisráðherra skýrslu þar sem fram kom að yrði ofangreindum tillögum komið í framkvæmd gætu íslensk heimili sparað yfir 100.000 krónur á ári í matarinnkaupum.
Ég er mjög sáttur við þessar tillögur, hvert einasta heimili mun njóta góðs af því ef þær koma til framkvæmda,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Það er mjög eðlilegt að við getum keypt þær vörur sem við viljum á því verði sem við fáum þær. Sem stendur eru höft og ofurskattlagning á vörum sem koma í veg fyrir að við getum nýtt okkur það, en þessar tillögur eru skref í rétta átt.“
Sigurður A. Sigurðsson, forstjóri Kaupáss, tekur í svipaðan streng. Almennt séð eru þessar tillögur nefndarinnar góðar en ég hefði viljað fá nánari umfjöllun frá henni um samkeppnisstöðuna á markaðnum. Ísland er eina landið þar sem stærsta fyrirtækið er með yfir fimmtíu prósenta markaðshlutfall og ég tel að þessa þætti þurfi að athuga fyrst áður en menn fara að ákveða hvernig eigi að ná matvöruverði niður,“ segir hann.
Ég er alveg sammála því að eitthvað þarf að gera til að lækka matvöruverð,“ segir Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður landbúnaðarnefndar. Við getum gert margt til þess, eins og að lækka virðisaukaskattinn og breyta til í tollamálum. Þó tel ég að þetta megi ekki gerast of harkalega þar sem við þurfum að vernda hreinleika íslenskrar framleiðslu. Eins og þetta er lagt fram frá Hagstofu hefði ég viljað sjá verð á innfluttum mat lækka þegar dollarinn var sem lægstur.“
Ekki náðist í Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra í gær.
Greint frá á visir.is
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanReynsluboltar úr veitingageiranum opna kokteilbar á Hverfisgötu
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Markaðurinn7 dagar síðanKúmenosturinn er kominn aftur og færir íslenskri matarhefð nýtt líf
-
Frétt1 dagur síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt1 dagur síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð


