Vertu memm

KM

Matreiðslumaður Ársins 2010 – Forkeppni

Birting:

þann

Forkeppni fyrir keppnina um Matreiðslumann ársins 2010  verður haldin fimmtudaginn 23. september í Vetrargarðinum í Smáralind
Þar verða valdir fimm keppendur sem fara í úrslitakeppni.
Fyrirkomulag úrslitakeppni verður kynnt síðar.
 
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu og hafa staðfest þátttöku með greiðslu keppnisgjalds kr. 20.000.- fyrir 1. september 2010.
Fimm efstu komast í úrslitakeppnina, ekki eru gefin upp sæti.
Tilkynnt verður samdægurs hverjir komast áfram.
Keppendur hafa 1 klukkutíma til að afgreiða matinn; forrétt og aðalrétt.
 
Keppendur eiga að koma með allt hráefni sjálfir, eins mikið forunnið/eldað og þeir kjósa.
 
Ekkert hráefni fáanlegt á keppnisstað.
 
 
Hráefni og uppsetning:
Eldaður er forréttur og aðalréttur fyrir 6 manns sem eru framreiddir á diskum.
(fimm fyrir dómara)
 
Í forkeppninni eiga keppendur að elda forrétt og aðalrétt úr eftirtöldu hráefni:
forréttur: Þorskur, rauðar íslenskar kartöflur, Brúnt brauð (s.s. Rúgbrauð, maltbrauð )
Aðalréttur: kalkúnn; nota verður læri og bringur, sellerí; nota verður rót og stöngul
 
Þema keppninnar : Íslensk náttúra
 
Dæmt er eftir NKF reglum, nema að vægi dóma í forkeppni er eftirfarandi;
 
Vægi dóma:
Eldhúsvinna, hreinlæti og tímasetningar 10%
Framsetning/samsetning/þema 40%
Bragð 50%
Áhöld:
Eldhúsin verða án smá-áhalda svo keppendur þurfa að koma með öll áhöld með sér
 
Dómarar:
Dæmt verður með blind smakki og dómarar verða fimm sem allir hafa lokið dómaranámskeiði NKF.
Auk tveggja eldhúsdómara.
 
Fatnaður:
Keppendum er skylt að vera í einkennisklæðnaði sem er svartar buxur,hvítur kokkajakki, húfa og hvít svunta, allt vel til haft.
 
Uppskriftir:
Matseðli og uppskriftum skal skila inn á Íslensku og ensku í tölvutæku formi, ásamt matseðli og kynningu til útstillingar.
Uppskriftir verða eign Klúbbs Matreislumeistara.
Skráning:
Skráning er á [email protected]
Keppnisgjald er kr. 20.000,-
Skráningarfrestur er til 1. september 2010
Í skráningu þarf eftirfarandi að koma fram:
• Nafn
• Vinnustaður
• e-mail
• Aldur
• Greiðandi
 
Nefnd um Matreiðslumann Ársins.
 
 
Leggja á keppnisgjaldið inn á reikning KM:
0513-26-406407
kt: 571091-1199
ISK 20.000,-
Fyrir 1. september 2010
 

 

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið