KM
Marel Food Systems styrkir íslenska kokkalandsliðið

Marel Food Systems verður styrktaraðili íslenska kokkalandsliðsins næstu þrjú árin og mun leggja liðinu til styrk að upphæð kr. 1.000.000 á hverju ári samningstímans.
Styrknum verður varið til undirbúnings matreiðslukeppna hérlendis sem erlendis, þar með töldu Ólympíumóti matreiðslumanna í Erfurt í Þýsklandi sem fram fer 19.-22. október næstkomandi. Samstarfssamningur Marel Food Systems við Klúbb matreiðslumeistara tók gildi þann 15. maí s.l.
Hinn árlegi styrkur greiðist í formi peningastyrks að upphæð kr. 300.000, hönnunartíma hjá grafískum hönnuði að verðmæti kr. 300.000, prentun á kynningarefni að verðmæti kr. 250.000, og 40 tíma í ryðfrírri smiðju að verðmæti kr. 150.000 sem m.a. verður varið til hönnunar á keppnisborði landsliðsins á Ólympíumótinu í október.
Á móti kemur að Klúbbur matreiðslumeistara mun aðstoða Marel Food Systems við vöruþróun, kynningar, uppskriftir og auglýsingar. M.a. mun Klúbburinn taka þátt í undirbúning og skipulagningu vegna tveggja viðburða á árinu sem haldnir verða í húsakynnum Marel. Þá mun Klúbburinn halda nafni og vörumerki Marel á lofti í keppnum sem og hverskyns kynningum sem hann er aðili að.
Samstarfssamningurinn var undirritaður í höfuðstöðvum Marel Food Systems í Garðabæ þann 13. maí s.l. Stella Björg Kristinsdóttir undirritaði hann fyrir hönd Marel og Alfreð Ómar Alfreðsson, nýkjörinn forseti Klúbbs matreiðslumeistara, fyrir hönd Klúbbsins.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel19 klukkustundir síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn3 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn6 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Markaðurinn5 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands blæs til kokteilkeppni, frjálst þema og vegleg verðlaun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTímamót hjá Mat og drykk eftir áratug á Grandagarði




