Keppni
Konfektmoli Ársins 2018 – Skráning
Samhliða Eftirréttur Ársins höldum við nú í annað skipti keppnina Konfektmoli Ársins.
Keppnin fer þannig fram að keppendur skila á keppnisstað átta tilbúnum konfektmolum í sömu tegund á fyrirfram ákveðnum tíma.
Keppnisrétt hafa þeir sem lokið hafa sveinsprófi í matreiðslu, konditori og bakaraiðn eða eru á nemasamningi í fyrrnefndum greinum. Undantekningartilvik frá ofannefndu verða metin sérstaklega.
Þema keppninnar er “HOT STUFF”.
Hver og einn keppandi túlkar þemað eftir sínu höfði. Þeminn þarf að skila sér t.a.m. í hráefni, áferð, nafni, uppbyggingu osfrv.
Eftirfarandi hráefni eru skylduhráefni og þurfa að vera í konfektmolanum:
- Cacao Barry Mexique 66% dökkt súkkulaði
- Ken Láctea rjómi
- Ein eða fleiri af eftirfarandi Capfruit ávaxtapúrrum:
- Sítróna
- Lime
- Yuzu
- Blóðappelsína
- Mandarína
- Appelsína
- Bergamot
Notkun á súkkulaði, púrrum og rjóma frá öðrum framleiðendum er ekki leyfileg í keppninni.
Keppendur fá ítarlega lýsingu á reglum og aðstöðu að lokinni skráningu og greiðslu á 5000 kr. staðfestingargjaldi. Þá fá keppendur einnig afhendan grunnhráefnapakka til æfinga frá Garra.
Gjaldið endurgreiðist þeim sem mæta samkvæmt tímaplani á keppnisstað.
Opnað verður fyrir skráningu fimmtudaginn 27. september kl. 10:00. Þrjátíu sæti eru í boði. Skráning hér. Athugið að einungis tveir aðilar geta skráð sig frá hverjum vinnustað. Nánari upplýsingar gefur Ívar í síma 8583005 eða [email protected]
Í fyrstu verðlaun er eftirréttanámskeið erlendis hjá Cacao Barry.
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni7 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




