KM
Kjötbankinn & Dreifing styrkja kokkalandsliðið um 100,000,-

Að halda úti starfsemi Landsliðs matreiðslumanna er kostnaðarsamt og krefst mikillar vinnu. Þeir sem fylgst hafa með landsliðinu á undanförnum árum vita af hversu miklum metnaði meðlimir landsliðsins hafa unnið og það sama má segja um Klúbb Matreiðslumeistara, en Landslið matreiðslumanna er í umsjón KM.
Við skorum á birgja og aðra velunnara að skoða það alvarlega að veita styrk til landsliðsins. Kjötbankinn og Dreifing hafa reitt fram rausnarlegan styrk til landsliðsins að verðmæti 100,000 kr.
Eftirfarandi tilkynning kom frá Kjötbankanum og Dreifingu:
Kjötbankinn – Dreifing
Í tilefni af frábærum árangri landsliðs okkar í Matreiðslu á Olympíuleikum í Erfurt í Þýskalandi þá viljum við styrkja landsliðið Klúbb Matreiðslumeistara um 100.000.- kr og viljum skora á önnur fyrirtæki að gera slíkt hið sama eða enn betur.
Til hamingju matreiðslumenn, bakarar og annað fagfólk.
Starfsfólk Kjötbankans og Dreifingar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Uppskriftir7 dagar síðanAurore hjá Sweet Aurora deilir uppskrift með lesendum veitingageirans
-
Markaðurinn7 dagar síðanEyjó og Dóri mættu með afmælisköku – Hafið fagnar tímamótum
-
Keppni7 dagar síðanKokkur ársins 2026 og Grænmetiskokkur ársins 2026 fara fram í IKEA í mars
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt6 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt5 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki




