Vertu memm

Frétt

Kaka ársins valin

Birting:

þann

Kaka ársins 2010 hefur verið valin. Hilmir Hjálmarsson hjá Sveinsbakaríi bar sigur úr býtum í keppni um Köku ársins sem Landssamband bakarameistara efnir árlega til. Sala á kökunni í bakaríum félagsmanna Landssambands bakarameistara hefst um næstu helgi, konudagshelgina.

Í dag föstudaginn 19. febrúar mun Hilmir afhenda Ingibjörgu Ragnarsdóttur, liðsstjóra karlalandsliðsins í handbolta, köku í virðingarskyni fyrir framlag hennar til góðs gengis landsliðsins á Evrópumeistaramótinu í Austurríki á dögunum segir í tilkynningu um málið.

Keppnin um köku ársins fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn Kaka ársins. Keppnin var haldin í samstarfi við Nóa-Síríus.

Alls bárust 10 kökur í keppnina í ár. Sigurkakan er samsett úr dökkum súkkulaðibotni, hvítum botni, núggatmús og hjúpuð með dökkum Konsum orange súkkulaðihjúp. Höfundur hennar er Hilmir Hjálmarsson hjá Sveinsbakaríi.

Dómarar í keppninni voru Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, Jóhanna Gunnarsdóttir, matvælafræðingur hjá Nóa-Síríusi og Ásthildur Guðmundsdóttir kennari við bakaradeild Hótel og matvælaskólans.

Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land um helgina og verður til sölu það sem eftir er ársins.

Greint frá á Dv.is

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið