Vertu memm

Keppni

Jakob sigraði kokteilkeppni með drykknum Hús nr. 7

Birting:

þann

kokteilkeppni_kjarvalsstodum8

Jakob Már Harðarson

Á fimmtudaginn 29. ágúst s.l. fór fram kokteilkeppni á Kjarvalsstöðum sem Meet in Reykjavík og Ísland – allt árið stóðu fyrir. Uppleggið var að blanda drykk sem ætti að heita Inspired by Iceland og falla best að slagorðinu Inspired by Iceland.

Það þýddi m.a. að drykkurinn skildi vera bestur í bragði, góður og frískandi, en einnig ætti hann að vekja upp íslenska upplifun við smökkun.

Þátttakendur voru:

Guðmundur Sigtryggsson Hilton Reykjavik Nordica
Jakob Már Harðarson frá Radisson Blu Saga Hótel
Víkingur Kristjánsson frá Icelandair Hótel Reykjavik Marina
Vala Stefánsdóttir frá Icelandair Hótel Reykjavik Marina
Thomas Blazevicius frá Grand Hótel Reykjavík
Harpa Magnúsdóttir frá Sky Bar, Center Hótels
Jón Ingi Hrafnsson frá Mar

Í dómnefnd voru kallaðir til leiks fulltrúar frá aðildarfélögum Meet in Reykjavik og Ísland – allt árið, Íslandsstofu og fleiri. Tilgangurinn með keppninni var að velja kokteil með íslenskum áhrifum til að bjóða upp á á fagsýningum og kynningum erlendis sem og hérlendis fyrir erlenda kaupendur og viðskiptavini.

Hlutskarpastur í keppninni var Jakob Már Harðarson veitingastjóri á Radisson Blu Saga Hótel en hann var með drykk sem innihélt rabarbara úr eigin garði og villtri myntu úr bæjarlæknum.

Að hans sögn þarf ekki að leita langt yfir skammt til þess að nálgast gott hráefni en rabarbari vex í öðrum hverjum garði á Íslandi. Þetta er harðgerð jurt sem kemur upp á hverju vori og ekkert þarf að hafa fyrir. Því nefnir hann drykkinn stundum „Hús nr. 7“, en það vísar í uppruna hráefnisins við tilnefnt hús í bæjarfélagi á íslandi.

Starfsmenn Radisson Blu Saga hotel þau, (f.v.) Valgerður Ómarsdóttir Sölu og markaðsstjóri, Jakob Már Harðarsons Veitingastjóri og Soffía Pálsdóttir Sölustjóri

Starfsmenn Radisson Blu Saga hotel þau, (f.v.) Valgerður Ómarsdóttir Sölu og markaðsstjóri, Jakob Már Harðarsons Veitingastjóri og Soffía Pálsdóttir Sölustjóri

Meet in Reykjavik var stofnað í janúar 2012 og er ætlað að laða hinu verðmætu fundar-, ráðstefnu- og hvataferða gesti til landsins með öflugri markaðssetningu. Meet in Reykjavik ásamt aðildarfélögum er að fara á stóra alþjóðlega fagsýningu, IMEX America sem er haldin í Las Vegas og verður kokteillinn borinn þar fram í sérstökum ísglösum á samnorrænum viðburði á scandinavíska básnum nr 2819. Inspired by Iceland Kokteillinn verður einnig borinn fram í ísglösum á EIBTM sýningunni í Barcelona í nóvember á íslenska básnum en hann er nr F24.

Guðmundur Sigtryggson gefur hér Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara að smakka á keppnisdrykki

Guðmundur Sigtryggson gefur hér Kristjáni Jóhannssyni óperusöngvara að smakka á keppnisdrykk sínum

Ísland – allt árið er að fara að kynna vetrardagsskrána í september og þar verður að sjálfsögðu boðið upp á Inspired by Iceland Kokteilinn.

kokteilkeppni_kjarvalsstodum9Ástæðan fyrir því að ég tók þetta að mér að keppa var vegna þess að leitað var Radisson Blu Hótel Sögu með innlegg í keppnina. Ég var búinn að vera að leika mér með þennan rabarbaradrykk fyrr í sumar og barþjónar mínir prufuðu drykkinn á gesti hótelsins við góðar undirtektir. Ákvað því sjálfur að fara með kokteilinn í keppnina. Fann strax fyrir að fólk var áhugasamt yfir rabarabaranum og íslensku myntunni. Samsetningin var fólkinu einnig að skapi og að lokum valdi það drykkinn þann besta í keppninni,

… sagði Jakob í samtali við veitingageirinn.is. Jakob er bæði framreiðslu og matreiðslumaður að mennt en hann byrjaði að læra framreiðslu á Grillinu á Hótel Sögu árið 1985 og lærði síðan matreiðslu einnig á Grillinu tíu árum síðar og hefur starfað alla tíð í veitingabransanum. Jakob er aftur kominn á skólabekk og er að taka meistararéttindi í matreiðslu.

Uppskriftin að drykknum góða er hægt að lesa með því að smella hér.

 

Myndir: aðsendar

/Smári

Taggaðu okkur á Instagram: #veitingageirinn og myndirnar birtast sjálfkrafa á forsíðunni.

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið