Frétt
Hertar sóttvarnaráðstafanir – Veitingastaðir mega hafa opið til 21.00 – Krám og skemmtistöðum lokað
Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis um hertar sóttvarnaráðstafanir sem taka gildi laugardaginn 31. október. Sömu reglur munu gilda um allt land. Meginbreytingin felst í 10 manna fjöldatakmörkum í stað 20 áður. Allt íþróttastarf verður óheimilt og sviðslistir sömuleiðis. Gert er ráð fyrir að reglur um hertar aðgerðir gildi til og með 17. nóvember. Þær verða endurmetnar eftir aðstæðum með hliðsjón af því hvort hægt verði að aflétta þeim fyrr, eða hvort framlenging sé nauðsynleg.
Í minnisblaði sóttvarnalæknis kemur fram að smit í samfélaginu sé enn mikið, þrátt fyrir hertar sóttvarnaaðgerðir sem gripið var til 20. október síðastliðinn. Því sé hætta á að hópsýkingar brjótist út og valdi enn meira álagi á heilbrigðiskerfið sem sé mikið fyrir. Bent er á að Landspítali sé á neyðarstigi vegna mikils álags og að margvíslegri heilbrigðisstarfsemi hafi verið frestað til 15. nóvember. Mikið álag sé á þeim fimm farsóttarhúsum sem nú eru starfrækt og meira um veikindi meðal þeirra sem þar eru í einangrun en áður hefur verið í faraldrinum. Því er það mat sóttvarnalæknis að grípa þurfi til hertra aðgerða til að takmarka útbreiðslu veirunnar og koma þannig í veg fyrir alvarlegar afleiðingar af völdum COVID-19 og annarra sjúkdóma.
Helstu takmarkanir:
- Allar takmarkanir ná til landsins alls.
- 10 manna fjöldatakmörk meginregla.
– Heimild fyrir 30 manns í útförum en 10 að hámarki í erfidrykkjum.
– 50 manna hámarksfjöldi í lyfja- og matvöruverslunum en reglur um aukinn fjölda með hliðsjón af stærð húsnæðisins.
– Fjöldatakmarkanir gilda ekki um almenningssamgöngur, hópbifreiðar, innanlandsflug eða störf viðbragðsaðila.
– Fjöldatakmarkanir gilda ekki um störf ríkisstjórnar, ríkisráðs, Alþingis og dómstóla. - 10 manna fjöldatakmörk eiga ekki við þegar fleiri búa á sama heimili.
- Íþróttir óheimilar.
- Sundlaugum lokað.
- Sviðslistir óheimilar.
- Krám og skemmtistöðum lokað.
- Veitingastaðir með vínveitingaleyfi mega ekki hafa opið lengur en til 21.00.
- Grímuskylda þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
- Börn fædd 2015 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldamörkum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).
Undanþáguheimildir:
- Ráðherra getur veitt undanþágu frá takmörkunum vegna félagslega ómissandi innviða sem mega ekki stöðvast. Þar undir fellur m.a. heilbrigðisstarfsemi og félagsþjónusta.
- Ráðherra getur veitt undanþágu við banni frá íþróttastarfi fyrir einstaka viðburði, til dæmis alþjóðlegra keppnisleikja.
Reglugerð um samkomutakmarkanir vegna farsóttar
Minnisblað sóttvarnalæknis
Ný reglugerð um takmarkanir á skólastarfi verður kynnt í næstu viku.
Mynd: stjornarradid.is

-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Nemamyndin: Hótel Saga – Veturinn 1986-1987
-
Keppni1 dagur síðan
Landslið kjötiðnaðarmanna í hörkuformi fyrir París – Tímamælingar lofa góðu
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Bako Verslunartækni er nýr sölu- og þjónustuaðili TurboChef ofna á Íslandi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
ÓJ&K – ÍSAM bauð KM-félögum upp á veislu – Konditorar boðnir velkomnir – Myndir
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Ekki lengur bara sjálfboðavinna – Matreiðslumeistarar með nýja bækistöð
-
Vín, drykkir og keppni19 klukkustundir síðan
Upplifðu franska vínmenningu með Gunna Palla & Georg Leite
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Sætur draumur að veruleika: Dagur í lífi eiganda Sweet Aurora
-
Keppni1 dagur síðan
Ísland í sigursæti á alþjóðlegri kokteilakeppni – Myndir