Freisting
Ferðaðist 15000 kílómetra til að borða Hákarlauggasúpu
Fyrst ætla ég að skella inn atriði sem ég gleymdi í síðasta pistli.
Með gáminum sem kom í byrjun September voru uggar af Hákörlum frá Íslandi og voru 2 kínverskir staðir sem prófuðu þá og buðu þeir okkur Peter að koma og smakka, 15. og 16. September og verð ég að segja að það sem kom fyrst upp í huga minn var sú staðreynd að ég hafi ferðast 15000 kílometra til þess að setjast niður og borða Hákarlauggasúpu úr íslenskum uggum og enn meiri var undrun mín þegar ég smakkaði súpuna, hún var bara góð, þrælgóð.
Síðasta hótelið var Hótel Equatorial Bangi Putrajava. Og var byrjað með látum, því Sepang brautin (kappaksturs) er rétt hjá og var Grand Prix mót mótorhjóla um helgina og fullt hótel. Og þar sem það voru margir Ítalir, stungu þeir uppá að fyrir utan hefðbundna fiskrétti væri bætt við Sjáaréttapitsu, pastastöð með þrenns konar pasta og sósum með sjávarfangi og risotto með sjávarréttum og féll það í góðan jarðveg hjá mótorhjóla- köppunum. Var gangur i þessu alla vikuna, en þetta var síðasta vikan þar sem ráðstefnur voru fyrir Ramadan föstumánuðinn hjá múslimum, en þá fasta þeir frá sólarupprás til sólseturs í heilan mánuð og eru þá veitingastaðir meira og minna tómir nema á kvöldin þá er fullur skúr eins og einhver sagði einu sinni.
Eftir kynninguna skellti ég mér til Singapore og fór ég með Lúxusrútu (tveggja hæða bíll með sæti fyrir 30 manns, allt lacy boy stólar, setustofa niðri og þjónusta um borð, drykkir og matur).
Tók ferðin 5 tíma hvora leið. Um kvöldið þegar ég hafði snætt, ákvað ég að taka leigubíl og láta hann sýna mér það markverðasta í borginni og ekki stóð á því 2 tíma túr með leiðsögn á 2000 kr og var það mjög gaman. Í hádeginu daginn eftir fór ég og fékk mér á Swiss hótel The Stanford, hæsta hótelbygging í Singapore. Veitingastaðurinn á 70. hæð og barinn á 71. hæð í snúningsdæmi eins og Perlan og var viðurgjörningur frábær, semi buffet, foie gras stöð, val á súpum, aðalréttur og eftirrétta hlaðborð fyrir aðeins 95 US dollara. Á heimleiðinni þegar við fórum i gegnum landamæri landanna, þá taldi ég rúturnar sem voru að fara í gegn á sama tíma og voru þær um 40 talsins, þannig að það er mikill umferð um landamærin. Og í lokin þá kostaði farið með rútunni 1000 kr aðra leiðina, en flugrútan kostar 1150 aðra leiðina.
Kveðja Sverrir Halldórsson
Greint frá á heimasíðu KM
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn3 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?




