Frétt
COVID 19: Varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 8. febrúar
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur samþykkt tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á samkomutakmörkunum frá 8. febrúar.
Almennar fjöldatakmarkanir verða áfram 20 manns en með rýmri undantekningum en hingað til. Reglur um 2 metra nálægðarmörk og grímuskyldu verða óbreyttar. Heimilt verður að opna að nýju skemmtistaði, krár, spilasali og spilakassa að uppfylltum skilyrðum. Fjöldatakmörk gesta í sviðslistum verða aukin úr 100 í 150 manns og trú- og lífsskoðunarfélögum verður heimilt að halda athafnir, þar með taldar útfarir, með 150 manns að hámarki.
Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verður 150 manns með hliðsjón af fermetrafjölda og sama gildir um gesti á söfnum. Heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna búningsaðstöðu að nýju og æfingar í tækjasal verða heimilaðar með skilyrðum. Ný reglugerð sem kveður á um þessar tilslakanir gildir til og með 3. mars næstkomandi.
Að óbreyttu var miðað við að samkomutakmörkunum yrði ekki breytt fyrr en 18. febrúar samkvæmt reglugerð. Í minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra segir að þar sem COVID-19 faraldurinn hafi verið í mikilli rénun hér á landi telji hann réttlætanlegt að ráðast í tilslakanir fyrr en áformað var. Hann leggur þó áherslu á að varlega sé farið þar til bólusetning gegn COVID-19 hafi náð meiri útbreiðslu meðal landsmanna.
Veitingastaðir þar sem áfengisveitingar eru leyfðar, þar með talin veitingahús, kaffihús, krár og skemmtistaðir, skulu ekki hafa opið lengur en til kl. 22.00. Sama gildir um spilasali og spilakassa. Veitingar skulu aðeins afgreiddar gestum í sæti. Ekki er heimilt að hleypa inn nýjum gestum eftir kl. 21.00.
Undantekningar frá 20 manna fjöldatakmörkunum
Eftirtaldar undantekningar eru frá 20 manna fjöldatakmörkunum en áfram gilda þó ákvæði um tveggja metra nálægðartakmörk og grímuskylda. Fjöldatakmörkin eiga ekki við um börn fædd 2005 eða síðar þar sem þau eru undanþegin ákvæðum um fjöldatakmörk, nálægðarmörk og grímuskyldu.
- Trú- og lífsskoðunarfélög: Við allar athafnir mega vera 150 fullorðnir einstaklingar.
Verslanir: Heimilt verður að taka við 150 viðskiptavinum að hámarki í hverju rými sem uppfyllir skilyrði um fjölda fermetra.
Söfn: Heimilt er að taka á móti 150 gestum að hámarki í hverju rými sem uppfyllir skilyrði um fjölda fermetra.
Sviðslistir: Heimilt er að taka á móti 150 gestum í sæti.
Heilsu- og líkamsræktarstöðvar mega opna búningsaðstöðu að nýju og æfingar í tækjasal verða heimilaðar að því gefnu að ekki séu fleiri en 20 manns í hverju rými og skulu þeir skrá þátttöku sína fyrirfram. Leyfilegur hámarksfjöldi gesta nemur helmingi af þeim fjölda sem kveðið er á um í starfsleyfi. Allur búnaður skal sótthreinsaður eftir notkun og tryggja skal að einstaklingar fari ekki á milli rýma.
Hugarleikir: Reglur sem gilt hafa um íþróttaæfingar og keppnir munu nú gilda á sama hátt um t.d. skák, bridds og bingó og sambærilega hugarleiki.
Mynd: úr safni

-
Markaðurinn3 dagar síðan
Oatly kynnir nýja Lífræna Haframjólk – Hin fullkomna mjólk fyrir kaffibarþjóna og Latte
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift: Einföld og fljótleg mexíkósk kjúklingabaka með kotasælu
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Netflix-stjarnan Juan Gutiérrez mætir til Íslands – Eftirrétta og konfekt námskeið fyrir sælkerana á vegum Iðunnar Fræðsluseturs
-
Markaðurinn2 dagar síðan
La Sommeliére vínkælar í úrvali fyrir veitingahús og veislusali
-
Food & fun4 dagar síðan
Reyka kokteilkeppnin: Harður slagur en Daníel Kavanagh stóð uppi sem sigurvegari – Myndasafn
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðan
Vel sóttur fundur hjá KM Norðurland á heita æfingu hjá 3. bekk í Verkmenntaskólanum á Akureyri – Myndir
-
Keppni1 dagur síðan
Úrslit í kokteilkeppninni á degi heilags Patreks – Heimir sigraði með Irishman – Myndir og vídeó
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Endurnýjaðu án þess að sprengja budduna – Skoðaðu úrvalið af notuðum tækjum fyrir veitinga- og hótelrekstur