Sverrir Halldórsson
Borgarbomban á Steikhúsinu
Það var núna í apríl sem ég ákvað að líta inn hjá þeim á Steikhúsinu og prófa þetta sem þeir kalla Borgarbomban og er fyrsta sunnudag hvers mánaðar.
Eitthvað svona öðruvísi og gaman að sjá hvernig markaðurinn tæki því, var mættur um sexleitið og vísað til borðs og þjónninn var mjög kunnuglegur en það var hann Árni frá Húsavík, ætlaði hann að sjá um mig þar inni og var það ekki leiðinlegt að vita það. Það þurfti engan matseðill því það var tilboð dagsins og engar refjar með það, bensín kom á kantinn og svo slakaði maður bara á og naut umhverfisins og iðandi mannlífi því stöðugur straumur var inn á staðinn og var ég spenntur að sjá pantanir hjá fólkinu.
Svo kom bomban og leit hún virkilega flott út, en í henni er 180 gr. briefylltur hamborgari með sýrðu grænmeti, mango chutney, chipolate, beikon og þrísteiktum kartöflum.
Bað ég um béarnaise sósu með og svo hófust leikar, þetta var alveg magnað algjört sælgæti, fyrir utan að béarnaise sósan var þunn eins og vatn.
Árni eins og sönnum þjóni, tókst að pranga inn á mig eftirrétti og var skyr og lakkrísterta með mangósósu fyrir valinu.
Tertan kom fljótlega, síðast þegar ég kom var uppistaðan í réttinum rjómaostur, en nú hafði skyri verið skipt inn í staðinn, þetta er syndsamlega góður eftirréttur, eina að mangó maukið er svo bragðsterkt að lakkrísbragðið fannst ekki, en skyrið gerir honum bara gott, verður ferskari fyrir vikið.
Þegar ég var að ganga út rúmlega 19:00, þá voru Níels, Hjörtur og Árni að byrja aðra umsetningu þetta kvöldið og hvað haldið þið að hafi verið vinsælast, jú Borgarbomban.
![]()
-
Keppni4 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Keppni7 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Markaðurinn3 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Frétt5 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn3 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta







