Freisting
Athyglisverð hugmynd um íslistasafn í Vogum

Lista-, og matreiðslumaðurinn Ottó Magnússon hefur viðrað athyglisverða hugmynd við bæjaryfirvöld í Vogum um íslistasafn. Um yrði að ræða niðurgrafið 1000 fermetra safn sem ekki á sér hliðstæðu í heiminum.
Óttó er þekktur af tilkomumiklum ísskúlptúrum sínum sem hann hefur skapað fyrir hin ýmsu tækifæri en hann er Íslandsmeistari í klakaskurði og hlaut fyrir nokkrum árum annað sæti í snjóskurðarkeppni á Grænlandi.
Mig langar að gera þetta almennilega en það passar ekki að vera með þetta á milli húsa. Hugmyndin er að byggja þetta ofan í gryfju eða gjá þannig að þetta verði eins og stór hellir. Þetta er því ekkert ósvipað og íshótelið fræga í Svíþjóð, nema að þetta er listasafn en ekki hótel, segir Óttó aðspurður um hugmyndina.
Flatarmál íslistasafnsins yrði um það bil eitt þúsund fermetrar og umgjörðin sköpuð með áhrifamikilli lýsingu og hljóði þannig að úr yrði draumkennd töfraveröld. Sérstakur vélbúnaður yrði notaður við sjálfa frystinguna.
Áðurnefnt íshótel í Svíþjóð laðar til sín milljónir ferðamanna á ári hverju og er því ekki ólíklegt að íslistasafnið hefði mikið aðdráttarafl, ekki síst í ljósi þess hve nálægt það yrði við alþjóðaflugvöllinn. Óttó segist ekki vita til þess að íslistasafn sé til annars staðar þannig að líklega ætti það sér enga hliðstæðu. Auk verka hans yrðu á safninu verk eftir aðra ís-skúlptúrista en Ottó hefur kynnst þeim nokkrum á ferðum sínum um heiminn í tengslum við listsköpun sína. Ottó segist reikna með að 30-50 störf myndu skapast við framkvæmdina.
Ég er búinn að vera með þessa hugmynd í maganum í mörg ár og fannst vera kominn tími til að viðra hana og kanna undirtektir. Þetta er nýsköpunarhugmynd og það veitir víst ekki af þeim núna.
Bæjarráð Voga hefur tekið vel í hugmyndina og óskar eftir nánari útfærslu áður en afstaða verður tekin til málsins.
Greint frá á Vf.is
Mynd: Freisting.is | [email protected]
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt6 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt5 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag
-
Food & fun1 dagur síðanMatarhátíðin Food & Fun fer fram í 23. sinn




