Markaðurinn
Allir geta sótt um tekjufallsstyrki
Alþingi samþykkti fyrir helgi frumvörp um framlengingu á lokunar- og tekjufallsstyrkjum vegna COVID-19. Allir þeir sem stunda atvinnurekstur munu geta sótt um, hvort sem reksturinn er í gegnum félag eða á eigin kennitölu einstaklings. Ná þarf tilteknu tekjufalli á milli áranna 2019 og 2020 til að styrkur komi til álita, auk annarra skilyrða og takmarkana.
Tekjufallsstyrkir, sem ná sennilega til margra veitingahúsa, ná nú til stærri hóps en í fyrstu. Í upphaflegu frumvarpi var gert ráð fyrir að fyrirtæki sem hafa orðið fyrir minnst 50 prósent tekjufalli á tímabilinu 1. apríl til 30. september, og eru með þrjá eða færri starfsmenn, geta sótt um styrkina. Efnahags- og viðskiptanefnd lagði hins vegar til að styrkirnir verði einnig í boði fyrir stærri fyrirtæki og að miðað verði við 40 prósenta tekjufall en ekki 50 eins og í upphaflega frumvarpinu.
Sjá einnig: Vilja afgreiða tejkufalls- og lokunarstyrki fyrir helgi
Búast má við frekari leiðbeiningum á vefsíðu Skattsins í næstu viku, að því er þar kemur fram, og síðan verður auglýst sérstaklega þegar opnað verður fyrir umsóknir.
Unnt er að leita nánari upplýsinga í beinum þjónustusíma 4421414. Eins er hægt að óska eftir upplýsingum með tölvupósti sem sendist til [email protected].
Mynd: úr safni
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt4 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni3 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni9 klukkustundir síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum




