Frétt
735 milljóna króna rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir fyrstu sex mánuði ársins
Rekstrarhagnaður Íslandshótela fyrir afskriftir (EBITDA) var 735 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins samkvæmt samstæðuárshlutareikningi félagsins en var 1.290 milljónir á sama tímabili á síðasta ári. Tap varð af rekstrinum sem nam 1.201 milljónum króna og má að mestu rekja það til kjarasamningshækkana og hás vaxtastigs hérlendis og erlendis.
Í tilkynningu kemur fram að tekjur félagsins á fyrri helmingi ársins eru til samræmis við tekjur sama tímabils í fyrra en gistinætur voru 5% færri milli tímabila.
„Íslandshótel standa sterk eins og efnahagsreikningurinn sýnir en ýmsir ytri þættir hafa haft sín áhrif. Má þar nefna kjarasamningshækkanir og vaxtastigið sömuleiðis. Gistinóttum hefur fækkað, spár um fjölda ferðamanna hafa ekki alveg gengið eftir og það er einnig ljóst að eldsumbrotin á Reykjanesi hafa haft áhrif.
Við höldum áfram að sýna skynsemi í rekstri, starfsmannahópur okkar er öflugur og skýr og umhverfisvæn stefna okkar skilar sínu hjá ferðamönnum sem eru æ meðvitaðri um mikilvægi þess þáttar við val á gistingu.
Við horfum því bjartsýn fram á veg,“
segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela.
Samstæðuárshlutareikningur Íslandshótela var sendur Kauphöll Íslands sem hægt er að skoða með því að
smella hér.
Íslandshótel er leiðandi afl í íslenskri ferðaþjónustu og rekur 17 hótel með 1955 herbergi á lykilstaðsetningum um land allt. Fyrirtækið er styrk stoð í þessari sívaxandi atvinnugrein og mun halda áfram að vera fyrsti valkostur þeirra sem velja hótelgistingu á Íslandi.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn5 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn5 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga
-
Keppni2 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt4 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar




