Vertu memm

Björn Ágúst Hansson

Paddy‘s í Keflavík – Veitingarýni

Birting:

þann

Paddy‘s í KeflavíkFyrir stuttu opnaði Paddy‘s í Keflavík eldhús sem eru aðallega með hamborgara og svo er líka hægt að fá sér amerískan morgunnmat allan daginn en þau ætla að bæta fleiri hlutum á matseðilinn.

Paddy‘s í KeflavíkPaddy‘s er með opið grillið frá klukkan 11:00 til 22:00, en föst-, og laugardaga er opið til klukkan 21:00. Eigandinn á staðnum heitir Ármann Helgason og fagnar staðurinn 10 ára nú í ár. Rekstrarstjórinn á staðnum er hún Eydís Ármannsdóttir og maðurinn bakvið grillið er Jeff sem hefur verið að elda í 14 ár.

Aðpurður um hvort þetta væri langþráður draumur að rætast, en undirbúningurinn er búinn að taka um eitt ár og Ármann vildi taka góðan tíma í þetta þar til það var orðið fullkomið. Á einum mánuði án þess að auglýsa, er búið að fara um 1000 hamborgarar sem er virkilega fínt.

Fréttamaður veitingageirans fór nú á dögunum og fékk að smakka hjá þeim tvo hamborgara, sem voru virkilega góðir.

Byrjað var á B.B.King hamborgaranum, en á honum er: gráðostur, gouda ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og Paddy‘s sósa og hann er borinn fram með kónga sultu.

Byrjað var á B.B.King hamborgaranum, en á honum er: gráðostur, gouda ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og Paddy‘s sósa og hann er borinn fram með kónga sultu.

Fannst þessi vera virkilega góður, hef ekki séð áður en passar skemmtilega vel saman gráðosturinn og sultan, og virkaði þetta vel saman.

Svo var það Paddy‘s hamborgarinn, á honum er pipar ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og Paddy‘s sósa.

Svo var það Paddy‘s hamborgarinn, á honum er pipar ostur, kál, tómatar, rauðlaukur og Paddy‘s sósa.

Virkilega góður líka, pipar osturinn fannst mér vera frábær á hamborgarann.

 

/Björn

twitter og instagram icon

 

Björn Ágúst Hansson er matreiðslumaður að mennt en hann lærði fræðin sín á Hótel Rangá. Björn hefur starfað meðal annars á Hótel Sögu, White Brasserie í Englandi, Þremur Frökkum. Hægt er að hafa samband við Björn á netfangið: [email protected]

Auglýsingapláss
Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið