Markaðurinn
Fastus auglýsir eftir söluráðgjafa stóreldhúsa
Fastus óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í hóp söluráðgjafa Fastus lausna. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir meðal annars á þekkingu á stóreldhúsum og veitingaþjónustu, þjónustulund og lausnamiðað hugarfar.
Söluráðgjafar stóreldhúsa hjá Fastus sérhæfa sig í sölu á vörum og lausnum fyrir stóreldhús auk hönnunar eldhúsrýma. Leitað er að einstaklingi sem hefur þjónustumiðað viðhorf og víðtæka þekkingu á stóreldhúsum og veitingaþjónustu.
Helstu verkefni
- Fagleg ráðgjöf og sala á vörum og lausnum tengdum stóreldhúsum
- Hönnun stóreldhúsa
- Að styrkja og efla samskipti við viðskiptavini
- Öflun nýrra viðskiptatækifæra, tilboðsgerð og eftirfylgni með sölutækifærum
- Þátttaka í þróun og eflingu vöruframboðs
- Samskipti við erlenda og innlenda birgja
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfnikröfur
Menntun og reynsla á sviði matreiðslu er skilyrði og reynsla af sölu er kostur. Þá er lögð áhersla á ríka þjónustulund, jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni.
Umsækjandi þarf jafnframt að búa yfir skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum ásamt góðri tölvukunnáttu og góðri íslensku- og enskukunnáttu. Reynsla af teikniforritum er kostur.
Um Fastus
Fastus er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreytt vöru- og lausnaframboð fyrir fyrirtæki og stofnanir, meðal annars í veitinga- og ferðaþjónustu og heilbrigðisrekstri. Hjá fyrirtækinu starfar samstilltur hópur fagfólks og lögð er áhersla á framúrskarandi þjónustu og lausnir sem mæta þörfum viðskiptavina.
Fastus hefur hlotið jafnlaunavottun og hjá fyrirtækinu starfar öflugt starfsmannafélag.
Umsóknarfrestur er til og með 24. september 2026.
Umsókn skal fylla út á ráðningarvef Intellecta og henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og þeirri hæfni sem nýtist í starfinu.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran og Vilborg Þórðardóttir hjá Intellecta.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun21 klukkustund síðanEfnisstraumar á veitingageirinn.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Keppni6 dagar síðanMarína Björk bakaranemi sigraði í kleinuhringjakeppninni
-
Keppni4 dagar síðanElvar keppti fyrir Íslands hönd í Singapore
-
Keppni6 dagar síðanParís 1920 í aðalhlutverki í árlegum keppnum Garra
-
Markaðurinn6 dagar síðanIðan Fræðslusetur 20 ára – fullt af tækifærum fyrir fagfólk
-
Markaðurinn3 dagar síðanLærðu af einum fremsta matarljósmyndara Norðurlanda




