Markaðurinn
Íslenskir barþjónar dáðust að óáfengum dósakokteilum
Stockholms Bränneri Distillery var stofnað árið 2015 og ber þann heiður að vera fyrsta krafteimingarhúsið í Stokkhólmi. Að baki verkefninu standa hjónin Calle og Anna, sem hófu feril sinn í brugglistinni með því að framleiða fyrsta gin sitt fyrir eigin brúðkaup.
Með þeirri tilraun kviknaði hugmyndin að Stockholms Bränneri, þar sem markmiðið hefur frá upphafi verið að heiðra norræna arfleifð, byggja á handverki og nota einungis hráefni í hæsta gæðaflokki.
Framleiðslan hefur vaxið jafnt og þétt síðustu tíu ár, en ávallt með sömu hugsjón að leiðarljósi: vandvirkni og gæði umfram allt. Í dag er Stockholms Bränneri þekkt víða fyrir fjölbreytt úrval drykkja sem bera með sér skýran norrænan svip.
Drykkur heildsala hefur nýverið bætt tveimur nýjum vörum frá Stockholms Bränneri í íslenskt úrval. Um er að ræða óáfenga kokteila í dós, Spicy Pink Paloma og Apéro Soda, sem nú þegar hafa vakið verðskuldaða athygli.
Þegar Drykkur leiddi hóp íslenskra barþjóna í heimsókn á brennsluna í tengslum við Bartender Choice Awards í ár, voru þessir drykkir þeir fyrstu sem boðið var upp á. Viðbrögðin létu ekki á sér standa. Allir voru sammála um að bragðgæði og jafnvægi drykkjanna væru einstök. Það var ekki fyrr en eftir smökkunina sem gestirnir fengu að vita að hér væri um óáfenga kokteila að ræða, sem kom mörgum á óvart.
Margir barþjónanna lýstu því yfir að þeir hefðu vart trúað því að drykkirnir væru óáfengir, og beindu þeim tilmælum til Drykkur að flytja þá þegar inn til Íslands. Þau tilmæli voru tekin til greina og eru Spicy Pink Paloma og Aporeo Soda nú orðin aðgengileg á íslenskum markaði.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÍslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
-
Keppni6 dagar síðanSkráning er hafin fyrir næsta Arctic Young Chef
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanGordon Ramsay undirbýr nýjan stað í hjarta London
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMichelin hættir með grænu stjörnuna
-
Frétt4 dagar síðanMatvælastofnun varar við neyslu á frosnum nautamaga
-
Starfsmannavelta19 klukkustundir síðanHópuppsagnir hjá Hilton Nordica og Natura
-
Markaðurinn4 dagar síðanSH-41 handsápa fyrir matvælaiðnað nú Svansvottuð
-
Frétt20 klukkustundir síðanCarlo Petrini er látinn, 76 ára að aldri






