Markaðurinn
Nýjar vörur og tveir nýir birgjar
Í vefverslun Ekrunnar má finna fjöldan allan af nýjum vörum sem og vörur frá tveimur nýjum íslenskum birgjum, Fiskur du Nord og Grími kokk.
Framleiðsluaðferðir Fiskur du Nord byggja á aldagömlum vestfirskum hefðum. Ferskur lax eða silungur er verkaður þannig að gæði og bragð er í fremsta flokki. Allt hráefni er sérvalið frá fyrstu hendi og öll flökun, söltun og sneiðing er handunnin. Engin aukaefni önnur en náttúrulegt salt og krydd eru notuð við framleiðsluna. Sannkallað handverk sem tryggir bestu mögulegu gæði og bragð. Vörurnar frá Fiskur du Nord henta mjög vel á morgunverðarhlaðborðið, í mötuneyti fyrirtækja og fyrir veisluþjónustur.
Grímur kokkur er fjölskyldufyrirtæki í fremstu röð hvað varðar framleiðslu á tilbúnum grænmetis- og sjávarréttum. Markmið Gríms kokks er að framleiða fyrsta flokks vöru úr gæðahráefni sem er bæði holl, bragðgóð og fljótleg að framreiða. Vörurnar frá Grími kokk eru tilvaldar í mötuneyti fyrirtækja og skóla af hvaða stærðargráðu sem er.
Kynntu þér nýjustu vörurnar frá þeim og fleirum í vefverslun Ekrunnar hér.
-
Áhugavert3 dagar síðanMyndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndir frá 30 ára afmælishátíð Hótel- og matvælaskólans
-
Keppni3 dagar síðanJanus kom, sá og sigraði í sinni fyrstu keppni
-
Frétt2 dagar síðanVeitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun11 klukkustundir síðanGóðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
-
Markaðurinn5 dagar síðanGlútenlausar vörur í stóreldhúsið
-
Markaðurinn7 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Frétt6 dagar síðanRannsókn á alvarlegu E. coli-hópsmiti enn ólokið




