Uppskriftir
Vanillusoðnar Plómur með Vanillurjómaís
Fyrir 4
Hráefni
9 plómur vel stífar
½ bolli hrásykur
Börkur af appelsínu bara ysta lagið
Safi úr einni appelsínu
1 peli vatn
1 Vanillustöng
Ísinn
1 heilt egg
1 eggjarauða
50 gr flórsykur
1 peli rjómi
Vanilludropar
Aðferð
Byrjið á að laga ísinn, þeytið rjómann og setjið í kæli. Þeytið eggin og sykurinn saman þar til hægt er að snúa skálinni við og ekkert fellur úr.
Blandið massanum og rjómanum saman varlega bætið vanilludropum út í eftir smekk og hafið í huga þegar ísinn frýs þá dofnar bragðið, setið í form og frystið, þetta er best að gera daginn áður.
Takið níundu plómuna og smakkið, til að vita hvort hún er sæt eða súr því sykurmagnið ræðst af því.
Setjið í pott vatnið vanillustöngina sem hefur verið klofin í tvennt, sykurinn, appelsínusafann og börkinn og látið suðuna koma upp, skolið vel plómurnar og skerið í tvennt og fjærlægið steininn og setjið út í vökvann og sjóðið þar til plómurnar eru mjúkar.
Berið fram strax með ísnum.
Höfundur: Sverrir Halldórsson matreiðslumeistari
-
Keppni6 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Keppni7 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanVerður 90 ára í febrúar og stendur enn vaktina í eldhúsinu
-
Keppni3 dagar síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM
-
Keppni2 dagar síðanKokkalandsliðið í fjórða sæti á HM
-
Keppni4 dagar síðanFréttavaktin: Kokkalandsliðið mætir í Chef’s Table í dag
-
Keppni5 dagar síðanStór stund fram undan hjá íslenskum barþjónum
-
Frétt6 dagar síðanÍslendingur leiðir áframhaldandi samstarf Alþjóðasamtaka matreiðslumanna



