Uppskriftir
Súkkulaðibitakökur
250 g smjörlíki
225 g sykur
225 g púðursykur
2 egg
475 g hveiti
1 tsk. natron
400 g niðurbrytjað suðusúkkulaði
Aðferð:
Mjúku smjörlíki, sykri, púðursykri, eggjum, hveiti, natroni og niðurbrytjuðu suðusúkkulaði er blandað í skál og hnoðað vel saman.
Þegar deigið er orðið þétt er það mótað í rúllur og sett í kæli í 3-4 klst. Rúllurnar eru teknar úr kæli og skornar í 1/2 sm þykkar sneiðar sem er komið fyrir á smjörpappír eða á smurða bökunarplötu.
Gætið þess að raða þeim ekki of þétt því þá vilja þær festast saman. Bakist við 180°C í 8-12 mínútur.
Höfundur er Guðni Hólm, bakari
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn3 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Keppni5 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni5 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Áhugavert1 dagur síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Frétt3 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar




