Viðtöl, örfréttir & frumraun
Stóra veislusýningin í Múlabergi
Múlaberg Bistro & Bar á Akureyri stendur fyrir glæsilegri veislusýningu laugardaginn 7. febrúar kl. 12:00. Boðið verður uppá litríka og spennandi sýningu þar sem fjölmörg fyrirtæki kynna og selja vörur og þjónustu fyrir alla þá sem eru að plana veislu eða hátíðlegar stundir.
Á sýningunni verða til staðar vörur á borð við förðunarvörur og förðunarráðgjöf, hárvörur og hárgreiðslur, fatnaður, auk fallegra skreytinga og borðskreytinga.
Veitingaaðilar munu bjóða upp á smakk meðan birgðir endast, svo gestir geta séð hvað er í boði og fengið ráðgjöf. Þetta er kjörið tækifæri til að sjá og prófa ýmsa möguleika á mat og varningi áður en ákvörðun er tekin.
Sýningin var haldin í fyrsta skipti í fyrra þar sem þemað var fermingar og hátt í 20 fyrirtæki á svæðinu tóku þátt og fór aðsóknin fram úr öllum væntingum. Í ár kom því ekkert annað til greina en að stækka viðburðinn og nú tekur viðburðurinn yfir alla veislusali Múlabergs, auk veitingastaðarins og systurstað Múlabergs, Terían Brasserie á jarðhæð.
Nýjung þetta árið: Múlaberg Bistro og Bar og Terían Brasseri bjóða gestum að panta sér einstaklingsbundna ráðgjöf með viðburðarstjóra,alveg óháð því hvort þjónusta eða veitingar verði keyptar. Ráðgjöfin er frábært tækifæri til að ræða hugmyndir, fá faglega innsýn í skipulag, matarval, skráningu og aðra þætti sem skipta máli.
Athugið að bóka þarf tíma í ráðgjöfina fyrirfram. Smellið hér til að panta tíma.
Múlaberg Bistro & Bar með þrjá stóra veislusali sem taka vel á móti stórum hópum og henta fyrir fjölbreyttar tegundir viðburða, giftingar, afmæli, árshátíðir, erfidrykkjur eða fyrirtækjaviðburði. Salirnir eru sveigjanlegir og hægt að aðlaga þá að mismunandi stærðum og þörfum svo hægt sé að koma til móts við allar þarfir.
-
Keppni5 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn4 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni5 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni3 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt6 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Nemendur & nemakeppni7 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði




