Uppskriftir
Sítrónutart
Fullkominn sítrónuunaður. Franskara getur það ekki verið. Þessi uppskrift er frá Marco Pierre White (MPW Recipes).
3-4 kökur (Stór uppskrift)
1 kg Hveiti
350 gr Flórsykur
500 gr Smjör
Börkur af tvem sítrónum í julienne
Skaf af einni vanillustöng
2 stk Egg
Fylling:
18 stk Egg
800 gr Flórsykur
10 stk sítrónur (safi)
500 ml Rjómi
Aðferð:
1- Hitið ofn í 180 gráður, blandið saman hveiti, smjöri og flórsykri.
2- Setjið sítrónubörkinn í ásamt innan úr vanillustönginni.
3- Þeytið eggin saman og bætið í. Hnoðið vel saman og vefjið í plastfilmu og geymið í kæli í um 30 mínútur.
4- Fletjið út deigið nægilega stórt til að passi í formið sem nota skal. Þrystið deiginu jafnt upp kantana á forminu. Skerið ekki aukadeig sem slútir út fyrir formið fyrr en eftir bakstur. Setjið smjörpappír ofaná deigið og setji bökunarbaunir eða linsubaunir sem ok við baksturinn.
5- Bakið í 10 mín, fjarlægið baunirnar og smjörpappírinn og skerið burt auka deig. Bakið aftur í 10 mín og takið úr ofninum.
6- Þeytið saman egg, flórsykur, sítrónusafa og sítrónubörk. Bætið rjómanum að síðustu í.
7- Lækkið hitan í ofninum í 120 gráður. Hellið fyllingunni í heitan botninn og bakið í 30 mín.
8- Rétt fyrir framreiðslu skal strá kökuna með flórsykri og gljá undir vel heitu grilli. Skerið í 8 sneiðar og framreiðið með t.d. ís eða sorbet.
Höfundur: Auðunn Sólberg Valsson matreiðslumeistari.
Mynd: úr safni
-
Keppni5 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn6 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Markaðurinn5 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni2 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni7 klukkustundir síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum




