Vertu memm

Freisting

Sigrún ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá MATVÍS

Birting:

þann

Sigrún Sigurðardóttir

Þann 1. ágúst síðastliðinn var Sigrún Sigurðardóttir ráðin sem ráðgjafi sjúkrasjóðs hjá MATVÍS.  Um er að ræða samvinnuverkefni stéttarfélaganna og Virk, Starfsendurhæfingarsjóðs.

Hlutverk Starfsendurhæfingarsjóðs er að draga markvisst úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna varanlegrar örorku, með aukinni virkni, eflingu endurhæfingar og öðrum úrræðum.

Sigrún er með skrifstofu að Stórhöfða 27 og vinnutíminn er þriðjudaga, föstudaga og annan hvorn miðvikudag. Netfang hennar er [email protected]

Hlutverk ráðgjafa  er að  veita einstaklingum aðstoð við að viðhalda og efla virkni til vinnu.  Hann býður öllum félagsmönnum sem sækja um dagpeningagreiðslur hjá sjúkrasjóði upp á þjónustu og aðstoð, einnig þeim félagsmönnum sem geta ekki eða eiga erfitt með að sinna sínum störfum eins og er vegna heilsu. Það geta verið einstaklingar sem eru í veikindaleyfi eða jafnvel ennþá í starfi.

Stuðningurinn tekur mið af þörfum og væntingum hvers og eins. En hér eru nokkur dæmi um þann stuðning sem stendur félagsmönnum til boða:

Sem dæmi um þennan stuðning má nefna:

  • Ráðgjöf og hvatningu sem tekur mið af aðstæðum einstaklings.
  • Mat á starfshæfni sem tekur mið af bæði heilsufarslegum og félagslegum þáttum.
  • Aðstoð við gerð og eftirfylgni einstaklingsbundinnar áætlunar um aukna virkni, heilsueflingu  og endurhæfingu.
  • Aðstoð og leiðbeiningar til að tryggt sé að viðkomandi einstaklingur fái það sem honum ber innan kerfisins.
  • Aðstoð frá sérfræðingum eftir mat á stöðu einstaklings hverju sinni.  Hér getur t.d. verið um að ræða aðstoð  lækna, sálfræðinga, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfa, félagsráðgjafa, náms- og starfsráðgjafa o.s.frv.
  • Aðstoð í formi stuðnings til náms sem hefur það að markmiði að auka vinnugetu einstaklings.
  • Aðstoð í formi skipulagðrar starfsendurhæfingar þar sem einstaklingurinn, atvinnurekandinn og mismunandi fagaðilar vinna saman við að finna leiðir til aukinnar vinnugetu.

Sjá nánar um Starfsendurhæfingu á vef www.virk.is

Greint frá á Matvis.is

/Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið