Freisting
Opnunarhóf ISS veitingasviðs á nýju miðlægu stóreldhúsi

Andreas Jacobsen og Jakob Már Harðarson
Í dag bauð ISS veitingasvið til hófs í tilefni af opnun á nýju miðlægu eldhúsi. Er um algera byltingu að ræða í aðstöðu og möguleikum á áframhaldandi vexti en hann hefur verið lýginni líkastur.
Fram kom í ræðu sviðsstjóra veitingasviðs Jakobi Már Harðarsyni að fyrir um ári þegar þeir hófu rekstur sviðsins að fyrsta dag elduðu hann og Andreas Jacobsen Yfirmatreiðslumaður mat fyrir 7 manns, en eru nú komnir yfir 800 hundruð máltíðir á dag, og er ekki hægt að segja annað að þeir hafa staðið í ströngu . Til hamingju með árangurinn.
Það er ekki eins og þeir séu að stoppa í vexti því þetta eldhús getur annað yfir 2000 máltíðum samtímis og miðað við fyrsta árið þá þurfa þeir væntalega að fara fljótlega að huga að stækkun.
Smellið hér til að skoða myndir frá opnunarhófinu.
Ljósmyndir tók Matthías Þórarinsson | Texti: Sverrir Halldórsson
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndband: Kokkar tóku á móti gestum í sal á meðan þjónar fóru í eldhúsið
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMakona er nýr veitingastaður við Borgartún 26: Myndir frá opnunarhátíð staðarins
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanStemningsmyndir frá Kalda bar þegar tilnefningar BCA voru kynntar
-
Frétt5 dagar síðanViðvörun til neytenda vegna grænmetisrétta í stórumbúðum
-
Frétt4 dagar síðanListería greind í grænmetisbollum frá Grími Kokki
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanHótel og matvælaskólinn endurtekur Meistaradaginn með nýrri áherslu
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanMánaðartilboð febrúar 2026: kjöt fyrir bolludag, sprengidag og öskudag





