KM
Myndasafn: Hörðustu steikarmenn ánægðir
Byrjað var um hálfsex leytið innfrá hjá þeim í Bönunum, en eins og flestir vita þá eru þeir einn af Gullstyrktaraðilum KM. Buðu þeir upp á grænmeti og ávexti í margskonar útgáfum og að sjálfsögðu var fljótand með.
Síðan fóru menn í hópum og skoðuðu vöruúrvalið í kælunum og gátu spurt starfsmenn á staðnum ef eitthvað lá mönnum á hjarta, síðan var safnast saman í mötuneyti þeirra Bananamanna en þar hélt forstjórinn Kjartan Már Friðsteinsson fyrirlestur um innflutning á grænmeti hér áður fyrr og til dagsins í dag og verður að segjast að það var ansi áhugavert.
Þá var kominn tími til að halda upp í Hæðarsmára og beið rúta fyrir utan fyrir þá sem vildu. Þegar þangað var komið var fundurinn settur og fyrsta mál eftir lestur fundargerðar síðasta fundar var að skrifa undir styrktarsamning við Banana og er um framlengingu á fyrri samningi og þegar það var yfirstaðið bauð forseti til matar en hann var lagaður af Steini Óskari Sigurðsyni og hans fólki og bauð hann upp á alveg stórglæsilegt hlaðborð og heyrði maður hörðustu steikarmenn muldra með sjálfum sér þetta er bara fjandi gott og var það sannleikanum samkvæmt.
Eftir matinn hélt dagskráin áfram og fyrstur var Evert Viglundsson Þjónn og einkaþjálfari með pistil um samspil matar og hreyfingar frá áhugaverðu sjónarhorni, næstur var Jóhannes Steinn Jóhannsson sem sagði frá för sinni til Dublin þar sem hann tók þátt í undanúrslitum norður evrópu hluta Global Chefs Challenge keppninnar þar sem hann náði þriðja sætinu. Síðan kynnti Steinn Óskar hugmyndafræðin á bak við Mann Lifandi og fórst það vel úr hendi, að lokum var Lárus Loftsson með kynningu á NKF þinginu sem haldið verður í maí hér á Íslandi.
Bananamenn eiga þakkir skyldar fyrir höfðingjalegar móttökur og sama má segja um þá í Manni lifandi en þeir stóðu vel fyrir sínu og held ég að allir hafi farið sáttir frá borði þetta kvöld.
Með þessu fylgja myndir teknar af Guðjóni Steinsyni Klúbbfélaga.
Smellið hér til að skoða myndasafn.
Meistararnir KM / Fundur 3 Mars 2009
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Er þorrablót í vændum ?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Monkeys PopUp á Hótel Vesturlandi – Ekki missa af þessum viðburði
-
Markaðurinn6 dagar síðan
Nýtt útlit á Tanqueray nr.10
-
Starfsmannavelta12 klukkustundir síðan
Er Bryggjan hætt starfsemi?
-
Markaðurinn6 dagar síðan
Allt fyrir Þorrablótin
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðan
Meistaradagurinn í Hótel- og matvælaskólanum
-
Frétt3 dagar síðan
Fallist á allar kröfur MATVÍS í dómsmáli gegn Flame
-
Markaðurinn7 dagar síðan
Ekta heimilismatur ofl. á góðu tilboði