Vertu memm

Veitingarýni

Mekka matreiðslunnar?

Birting:

þann

Pólskur matur í Keflavík

Á bak við framtakið standa nokkrar hugrakkar konur sem bæði vilja skapa sér atvinnu og kynna sína matarmenningu með stolti

Það er nú ekki eins og að Keflavík hafi verið Mekka matreiðslunnar hingað til þó að í dag megi þar inn á milli finna bæði góða veitingastaði og áhugaverða.

En það er ýmislegt spennandi að gerast í Keflavík. Og ekki fyrir svo löngu heyrði ég um nokkrar duglegar pólskar konur sem hefðu tekið sig saman og opnað hádegisverðarstað á Hringbrautinni  í Keflavík og væru að bjóða þar upp á ljómandi góðan pólskan hverdags eða heimilismat.

Mér fannst þetta spennandi enda ekki margir pólskir veitingastaðir á íslandi. Sagan á bak við þetta framtak er spennandi, en þær höfðu byrjað að elda mat heima fyrir pólska verkamenn sem virkilega langaði í almennilegan mat að heiman en höfðu hvorki kunnáttuna né þekkinguna til að elda.

Pólskur matur í Keflavík

Vanmat á gæðum

Ég hef unnið með mörgum pólskum matreiðslumönnum og mér finnst því miður að þegar talið berst að pólskum mat og matarmenningu þá hafa margir vott af  vantrú að öðrum líki pólskur matur.  Ég hef aldrei áttað mig á þessu vanmati þar sem ég veit að landið hefur uppá að bjóða gríðarlega mikið af fjölbreyttu og skemmtilegu hráefni ásamt því að Pólland er miðsvæðis í Evrópu og „matar áhrif“ nágrannalanda því  töluverð.

Pólskur matur í Keflavík

Pólskur matur í Keflavík

En hér í Keflavík er núna búið að opna einn af fyrstu pólsku veitingastöðunum á landinu og á bak við framtakið standa nokkrar hugrakkar konur sem bæði vilja skapa sér atvinnu og kynna sína matarmenningu með stolti (eru stoltar af sínum uppruna).

Þegar okkur bar að garði á laugardegi um hádegisleytið þá var staðurinn fullur og þurftum við að hinkra aðeins eftir borði, sem gaf okkur tíma til að virða fyrir okkur gestina. En þar á meðal voru nokkrar fjölskyldur og gert er ráð fyrir börnum, því mikið var um leikföng.  Þess má geta að á Suðurnesjunum er mesti fjöldi útlendinga búsettur á landinu í dag og pólverjar í miklum meirihluta.

Góður matur

Ég ætla ekki að hafa mörg orð um matinn önnur en þau að hann var ljómandi góður en nokkuð var farið að saxast á matseðilinn, sem var fjölbreyttur, er við komum enda komið fram yfir hádegi.

Pólskur matur í Keflavík

Áhugaverðast var ef til vill að súrkál var borið fram með flestu réttum, en súrkál að mínu mati algjörlega vanmetið hér á landi en víða í mið Evrópu er það haft í öndvegi enda ekkert nema hollustan.

Verðið á matnum er mjög stillt í hóf og er nokkuð undir því sem gengur og gerist en fyrir mitt leyti,  fannst mér þetta vera mjög spennandi, hér var framandi matur á góðu verði og ekki skemmdi það fyrir að þjónustan gekk hratt fyrir sig og var til  mikillar fyrirmyndar.

Lifið heil.

Pólskur matur í Keflavík

Pólskur matur í Keflavík

Pólskur matur í Keflavík

Ólafur Sveinn er menntaður sem matreiðslumeistari og rekstrarfræðingur af matvælasviði frá Göteborg Universitet. Í dag starfar Ólafur hjá HSS í Reykjanesbæ og hefur skrifað lengi um veitingastaði ásamt ljósmyndun fyrir veitingastaði og hótel. Hægt er að hafa samband við Ólaf á netfangið [email protected]

Podcast / Hlaðvarp

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið