Markaðurinn
Lyre‘s og Akkúrat leita að besta áfengislausa kokteilnum – Verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin
Sumarið er tíminn fyrir kokteila og besta leiðin til að kynna nýjar útgáfur er einfaldlega að efna til kokteilakeppni. Akkúrat heldur kokteilakeppni á Bingó 25. júlí næstkomandi þar sem ekkert verður gefið eftir – nema áfengið.
Samkvæmt könnun sem Maskína gerði fyrir Akkúrat eru um 27% landsmanna sem drekka ekki áfengi, annað hvort tímabundið eða ótímabundið. Það er því til mikils að vinna fyrir rekstraraðila að bjóða upp á gott úrval af áfengislausum valkostum fyrir viðskiptavini og gesti.
Metnaðarfullir veitingastaðir og barir eru farnir að vera með öflugt og girnilegt úrval af áfengislausum valkostum og með vörum frá Lyre‘s er hægt að búa til yfir 95% af vinsælustu kokteilum heims auk þess sem valmöguleikarnir eru nær endalausir við að skapa nýja og girnilega kokteila.
„Við erum mjög framarlega hér á landi þegar kemur að því að bjóða upp á og velja áfengislausa drykki. Við drekkum til dæmis mikið af áfengislausum bjór og framboðið á áfengislausum drykkjum er orðið svo miklu betra og gæðin meiri á síðustu árum,“
segir Logi hjá Akkúrat sem hefur verið barþjónn í meira en áratug.
Það eru fáar leiðir betri eða skemmtilegri til að kynna nýja kokteila en að halda kokteilakeppni og í þetta sinn eru það áfengislausir spírar frá Lyre‘s sem verða í aðalhlutverki.
„Okkur langaði til að kynna Lyre‘s spírana almennilega fyrir barþjónum borgarinnar og gera það á skemmtilegan máta. Lyre‘s líkja eftir aðalkokteilaspírunum og í þessu samhengi gefa þeir þeim ekkert eftir.
Þema keppninnar er einfaldlega „Sumar“ á hvaða hátt sem fólk svo túlkar það og ég hlakka mikið til að sjá hvað þátttakendurnir eru að fara að búa til. Það myndast mikil stemning í svona keppnum og svo ýta þær líka undir sköpunargáfu fólks og oft kemur fram eitthvað snilldarlegt sem svo er þróað áfram.“
Eins og áður segir verður kokteilakeppni Akkúrat og Lyre‘s haldin á Bingó á strangheiðarlegu þriðjudagskvöldi þann 25. júlí þangað sem allir eru velkomnir.
Dómnefnd velur bestu kokteilana og efstu þrjú sætin eru verðlaunuð með eftirfarandi hætti:
- sæti – Gjafabréf hjá Icelandair að andvirði 80.000 kr
- sæti – Út að borða fyrir 2 á Moss Restaurant í Bláa lóninu og aðgangur að Bláa lóninu
- sæti – Aðgangur að Bláa lóninu fyrir 2
Auk þess fá keppendur veglega gjafakörfu frá Lyre‘s til að töfra fram enn fleiri áfengislausa kokteila fyrir viðskiptavini sem vilja kokteilana sína án áfengis.
Sendu tölvupóst á [email protected] til að taka þátt.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun22 klukkustundir síðan
Slippurinn í Vestmannaeyjum tekur sitt síðasta tímabil 2025 – Gísli Matt: ástæða lokunarinnar er sú að við trúum því að allt gott taki enda
-
Frétt4 dagar síðan
Nýr miðlægur listi yfir sveina með starfsréttindi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Flottir ekta ítalskir réttir og pizzur af betri gerðinni – Fagnaðu gamlárskvöldinu með stæl á Piccolo – Myndir
-
Food & fun2 dagar síðan
Tveir íslenskir gestakokkar verða á Food and Fun hátíðinni í Stavanger
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Veitingageirinn í jólaskapi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðan
Gleðileg jól, kæru lesendur – Veitingageirinn.is þakkar fyrir sig
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðan
Árið 2024 var stórt ár fyrir matgæðinga á KEF
-
Markaðurinn5 dagar síðan
Jólakveðja frá Leiðtoga matvæla- og veitingagreina