Keppni
Landslið bakara í undirbúningi
Mikill áhugi er nú á að stofna landslið bakara hér á landi til að eiga kost á að taka þátt í erlendum bakarakeppnum. Davíð Þór Vilhjálmsson, stjórnarmaður í LABAK, Ásgeir Þór Tómasson og Henry Þór Reynisson fóru nýlega til Osló og kynntu sér Norðurlandakeppni í brauð- og kökugerð. Í tengslum við það var stofnaður landsliðshópur bakara á Facebook, að því er fram kemur á vef Landssambands bakarameistara.
Bakarar eru hvattir til að skrá sig í hópinn og kynna sér það sem þar fer fram. Áhugasamir bakarar eru farnir að hittast í Hótel- og matvælaskólanum á mánudagskvöldum til æfinga undir stjórn Ásgeirs Þórs Tómassonar. Öllum áhugasömum bökurum og kökugerðarmönnum er velkomið að taka þátt í því.
Á heimasíðunni labak.is kemur fram að ef allt gengur vel og nægur áhugi er fyrir hendi er stefnt að því að senda lið í næstu Norðurlandakeppni.
Landsliðshópur bakara á Facebook
Mynd: labak.is
-
Markaðurinn7 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn7 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn7 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga
-
Keppni4 dagar síðanGull hjá Kokkalandsliðinu í Lúxemborg
-
Frétt6 dagar síðanMyglueitur í hveiti: neytendur hvattir til að kanna birgðir sínar
-
Markaðurinn6 dagar síðanSvartir dagar hjá Progastro
-
Keppni5 dagar síðanFréttavaktin: Fylgstu með Kokkalandsliðinu á HM
-
Keppni17 klukkustundir síðanKokkalandsliðið hlaut gull í báðum keppnisgreinum á HM



