Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Konungskaffi opnar í nýja miðbænum á Selfossi
Kaffihúsið Konungskaffi opnaði 21. apríl s.l. en það er staðsett í Konungshúsinu í miðbæ Selfoss.
Rekstraraðilar eru Ísak Eldjárn Tómasson og Sunna Mjöll Caird.
- Ísak Eldjárn Tómasson
- Sunna Mjöll Caird
Konungskaffi býður bæði upp á mat og drykki með íslensku og dönsku sniði og að sjálfsögðu smurbrauð að dönskum hætti.
Um Konungshúsið
Húsið á Selfossi er endurgerð af Konungshúsinu, en upprunalega húsið var reist um vorið 1907 á Þingvöllum sem ætlað var Friðriki konungi VIII til bústaðar í heimsókn hans til Íslands um sumarið. Húsið var reist ofan við eða við Vellina, rétt fyrir neðan Öxarárfoss, og var í eigu Landsjóðs. Var það kallað Konungshúsið.
Húsið var leigt út til kaffisölu og gistingar næstu sumur og í því voru haldin réttarböll á haustin. Fyrir alþingishátíðina 1930 var ákveðið að flytja húsið og gera það upp og var það staðsett um 200 metrum utan við Valhöll. Var húsið haft sem bústaður Kristjáns konungs og Alexandrínu drottningar á Alþingishátíðinni.
Upp frá þessu mun það hafa farið að tíðkast að ráðherrar dveldu í Konungshúsinu að sumarlagi, einkum forsætisráðherra. Var það oft nefnt forsætisráðherrabústaðurinn á Þingvöllum. Árið 1946 er talað um hann sem „sumarhús ráðherra hins íslenska lýðveldis“.
Konungshúsið brann í eldsvoða 10. júlí 1970 og fórust þar þáverandi forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, Sigríður Björnsdóttir kona hans og ungur dóttursonur. Þar er nú minnisvarði um þau.
Heimild: Ráðherrabústaðir/stjornarradid.is
Myndir: facebook / Konungskaffi
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Markaðurinn5 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Keppni4 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum
-
Markaðurinn2 dagar síðanSegðu skilið við viðbrenndan grjónagraut í eitt skipti fyrir öll og prófaðu þessa aðferð
-
Markaðurinn7 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Markaðurinn4 dagar síðanHefur þú smakkað svart pepperoni?







