Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Kaffipressan kaupir Kaffistofuna – styrkir sérkaffimenningu á Íslandi

Í ágúst í fyrra opnaði sérkaffiverslunin Kaffipressan, Brekkugötu 5, í miðbæ Akureyrar. Boðið er upp á gæðakaffi úr kaffibaunum frá Kaffistofunni, ljúffengt bakkelsi frá Brauðgerðarhús Akureyrar auk annarra vara fyrir kaffiunnendur.
Kaffipressan hefur keypt rekstur handverkskaffibrennslu Kaffistofunnar.
Kaffistofan hefur verið leiðandi á sviði þróunar og sölu á handverkskaffi á Íslandi allt frá stofnun fyrirtækisins í ársbyrjun 2022. Síðustu tvö ár hafa einkennst af örum vexti og hefur félagið selt kaffi í áskrift bæði til einstaklinga og fyrirtækja, en höfuðáhersla hefur verið lögð á milliliðalausa sölu í netverslun Kaffistofunnar.
Félagið hefur starfrækt handverkskaffibrennslu í Hafnarfirði. Frá stofnun Kaffipressunnar hefur eigandi hennar einbeitt sér að því að byggja upp öfluga sérkaffimenningu á Íslandi. Í ágúst síðastliðnum var sérkaffiverslun Kaffipressunnar opnuð í Brekkugötu 5, þar sem hún hefur getið sér gott orð meðal kaffiunnenda á Akureyri og víðar.
Sjá einnig: Nýtt kaffihús opnar við Ráðhústorgið á Akureyri
Eftir kaupin á Kaffistofunni mun Kaffipressan taka upp nafn Kaffistofunnar fyrir sameinaða starfsemi. Kaffibrennslan verður flutt norður til Akureyrar um miðjan febrúar og má því búast við tímabundinni lokun sérkaffiverslunarinnar í Brekkugötu í 1–2 vikur, á meðan ný aðstaða verður sett upp. Reynt verður eftir megni að tryggja að ekki komi til truflana á afhendingu til áskrifenda Kaffistofunnar.
“Við erum spennt fyrir þeim nýju tækifærum sem felast í þessum samruna. Með sameiningunni getur „nýja Kaffistofan“ haldið áfram að efla sérkaffimenningu á Íslandi með því að bjóða upp á fyrsta flokks kaffi og gera hágæða kaffibaunir aðgengilegar fyrir landsmenn.
Við teljum þetta vera eðlilega þróun fyrir okkur og byggir á sameiginlegum markmiðum fyrirtækjanna, þar sem mikil gæði og sanngjarnt verð er okkur sérstaklega mikilvægt.“
segir Ármann Atli Eiríksson framkvæmdastjóri og eigandi Kaffipressunnar.
“Ég er mjög spenntur fyrir þessum breytingum og er sannfærður um að Kaffistofan á eftir að vaxa og dafna í höndum nýrra aðila. Samlegðin milli fyrirtækjanna er augljós og sameinað fyrirtæki hefur sterka stöðu til að láta að sér kveða á þessum markaði.“
segir Sverrir Berg Steinarsson framkvæmdastjóri Greindar ehf., fyrrum eigandi Kaffistofunnar.
Um Kaffistofuna
Kaffistofan er stofnuð á grunni áralangrar ástríðu stofnandans Sverris Berg Steinarssonar fyrir gæða kaffi. Kaffistofunni var ætlað að auka framboð á handverkskaffi og leggja sitt af mörkum við að auðga kaffimenningu á Íslandi.
Sverrir Berg hefur langa reynslu úr viðskiptalífinu og hefur stýrt fjölbreyttum verkefnum og fyrirtækjum meðal annars á sviði tækni, verslunar og afþreyingar.
Sverrir mun nú snúa sér alfarið að rekstri Greindar ehf. sem er ráðgjafafyrirtæki á sviði viðskiptagreindar.
Um Kaffipressuna
Kaffipressan var stofnuð árið 2020 og hóf starfsemi sína í færanlegum kaffivagni. Í ágúst 2024 opnaði fyrirtækið sína fyrstu sérkaffiverslun við Brekkugötu 5 á Akureyri. Þar er lögð áhersla á hágæða handverkskaffi á sanngjörnu verði.
Myndir: kaffipressan.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMatarmarkaður Íslands fer fram í Hörpu um helgina
-
Bocuse d´Or1 dagur síðanBein útsending frá Marseille þar sem Snædís keppir fyrir Íslands hönd
-
Bocuse d´Or3 dagar síðanÍslenska Bocuse d’Or liðið klárt í slaginn í Marseille
-
Frétt4 dagar síðanRené Redzepi stígur til hliðar frá Noma eftir ásakanir um ofbeldi gegn starfsfólki
-
Markaðurinn6 dagar síðanKvöld sem koníaksunnendur bíða eftir
-
Bocuse d´Or6 klukkustundir síðanFréttavaktin: Snædís keppir í Bocuse d’Or
-
Frétt5 dagar síðanGrunur um salmonellu í nautahakki og hamborgurum frá Ferskum kjötvörum
-
Keppni3 dagar síðanSara Rós sigraði í Whitley Neill kokteilakeppninni






