Frétt
Hlemmur mathöll og Grandi mathöll efna til opinnar umræðu um götubitann og íslenska matarmenningu
Hlemmur mathöll og Grandi mathöll efna til opinnar umræðu um götubitann og íslenska matarmenningu hinn 25. október við Grandabryggju og hefst hann kl. 17:00.
Um þessar mundir eru ýmsir aðilar að koma fram með hugmyndir um opnun staða á borð við mathallirnar á Hlemmi og á Granda. Það er kraftur í íslensku athafnafólki og þegar ágætlega hefur gengið með mathallirnar þá er ekki að sökum að spyrja; nú ætla margir frumkvöðlar að opna götubitastaði. Götubitamenning hefur eflst mikið víða um hinn vestræna heim en svo virðist sem hún verði hvergi hraðari en á Íslandi á næstu misserum. Það er ágætt að staldra við og huga að því hvernig svona umbreyting í götubitamenningu geti orðið sem skemmtilegust og fjölbreyttust hérlendis.
Markmiðið er að vekja athygli á þeim spennandi tækifærum sem íslenskir framleiðendur og frumkvöðlar standa frammi fyrir í ljósi breytinga á matarvenjum og hvernig Íslendingar geti nýtt sér eiginleika og sérstöðu landsins til að mæta, og jafnvel móta, kröfur neytenda framtíðarinnar.
Fimm einstaklingar halda örfyrirlestra um þróun götubitamenningar (street food) hérlendis og erlendis og hvernig Íslendingar og íslenska eldhúsið geti meðtekið þann áhuga sem er á götubitanum um allan heim.
Fyrirlesarar:
- Lotte Kjær Andersen framkvæmdastjóri Torvehallerne: „Overall trends of street food and food markets“.
- Róbert Aron Magnússon stofnandi Box Street food: „Reynslan af rekstri Box Street Food“.
- Steingrímur Sigurgeirsson vinotek.is: „Götubitinn frá sjónarhóli sælkerans“.
- Laufey Haraldsdóttir lektor við Háskólann á Hólum: „Íslenska eldhúsið og götubitinn“.
- Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður: „Reykjavík, skipulag götubitasölu“.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 klukkustundir síðanNotað Og Nýtt – Facebook hópur til að selja/kaupa notuð eða ný tæki
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr kafli í miðborginni, Gamla Reykjavík tekin til starfa
-
Frétt6 dagar síðan2,3 milljarðar króna í mat á ári, svona er eldhúsið á Rikers rekið – Myndband
-
Markaðurinn4 dagar síðanReyndur kokkur óskast í vaktstjórastarf á Snæfellsnesi
-
Markaðurinn7 dagar síðanKokkur óskast á Fosshótel Jökulsárlóni, fullt starf í einstöku umhverfi
-
Keppni3 dagar síðanNational Fish & Chip Awards: Íslenskur sigur við Mývatn vekur athygli
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 60% afsláttur af vinsælum vörum í takmarkaðan tíma
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanEldhús í ofurkeyrslu: 1.000 starfsmenn umbreyta Mercedes-Benz Stadium á innan við 18 klukkustundum






