Keppni
Global Chefs Challenge fer fram á Ítalíu
Dagana 16. til 18. febrúar fer fram undankeppni Evrópu fyrir Global Chefs Challenge sem haldin verður í kringum heimsþing matreiðslumanna sem fram fer í Wales 2026. Í undankeppninni sem fer fram á Rimini á Ísland þrjá keppendur:
Hinrik Örn Lárusson er einn af eigenda Lúx veitinga en Hinrik vann keppnina um Kokk ársins 2024, var um árabil í Kokkalandsliðinu ásamt því að keppa og aðstoða í ýmsum keppnum á síðustu árum. Hann tekur þátt í Global Chefs Challenge, þar sem skylduhráefnin eru lúða, kálfahryggvöðvi og kálfalifur.
Hinrik til aðstoðar er Andrés Björgvinsson, Lúx veitingar. Andrés vann um síðustu helgi keppnina um Ungkokk íslands og um leið þáttökurétt til í Euroskills sem fram fer í Herning, Danmörku í september. Þeir félagar hafa 2 tíma til að afgreiða tveggja rétta matseðill og hefja keppni kl. 08.00 mánudaginn 17. febrúar.
Bjarki Snær Þorsteinsson, Turninn, 19 hæð, keppir í Global Vegan Chef Challenge, honum til aðstoðar er María Ósk Steinsdóttir, Lúx veitingar. María aðstoðaði Bjarka einnig í Nordic Green Chef 2023. Bjarki sigraði keppnina um Grænmetiskokk ársins 2024 og er meðlimur í Kokkalandsliðinu. Þau hafa 2 tíma til að afgreiða tveggja rétta grænkera máltíð og hefja keppni kl. 07:45 sunnudag 16. febrúar.
Jafet Bergman Viðarsson, Torfhús Retreat, keppir í Global Junior Chef Challenge en keppnin er fyrir ungkokka að hámarki 25 ára á keppnisdegi. Jafet er meðlimur í Kokkalandsliðinu og keppti einnig í keppninni Nordic Junior Chef 2024.
Jafet keppir án aðstoðarmanns, en keppnishaldari leggur til uppvaskara honum til aðstoðar. Jafet hefur eina klukkustund til að reiða fram einn rétt þar sem skyldu hráefnin eru kálfahryggvöðvi og kálfalifur.
Myndir: aðsendar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn7 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn7 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn5 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels
-
Markaðurinn5 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Kunsang Tsering Tamang með spennandi námskeið í Ramen-gerð hjá Iðunni fræðslusetri
-
Markaðurinn5 dagar síðanSvane – Hreinlæti með umhverfið í huga





