Viðtöl, örfréttir & frumraun
Fundu tækifæri í kreppunni
Viðtökurnar hafa verið framar björtustu vonum, segja kokkarnir Haraldur Helgason og Magnús Þórisson sem opnuðu matsölustaðinn Réttinn í endaðan apríl.
Þrátt fyrir efasemdir sumra um að ekki væri þörf á fleiri veitingastöðum og allra síst í miðri kreppu, létu þeir félagar það sem vind um eyru þjóta og ákváðu að taka slaginn.
Við vorum báðir á ákveðnum tímamótum í lífinu. Ef verkefnin koma ekki upp í hendurnar á manni þá verður bara að búa þau til, segja þeir félagar sem báðir eru miklir reynsluboltar til margra ára í matreiðslufaginu.
Þeir Haraldur og Magnús ákváðu að róa á önnur mið. Það vantaði inn á markaðinn matsölustað með ódýran, heimilislegan mat. Slíkur staður hefur ekki verið á svæðinu síðan Þristurinn var og hét en hann var afar vinsæll eins og margir muna. Við keyrum á sömu hugmynd og teljum staðsetninguna hér í miðbænum mjög heppilega. Vinnusvæðið hér í kring er mjög stórt, segja þeir félagar en Rétturinn er til húsa á Hafnargötu 51 í húsnæði því sem áður hýsti Vínbúðina við hliðina á 10 11.
Svo hægt sér að bjóða upp á ódýrari mat þarf að halda kostnaði niðri. Opnunartíminn er því sniðin samkvæmt því en Rétturinn er opinn frá kl. 11-14 og 17 19 virka daga.
Ávallt er boðið upp á átta rétti í borði með fjölbreyttu úrvali. Þá bjóða þeir félagar einnig upp á veisluþjónustu fyrir alla mannfagnaði og bakkmat fyrir fyrirtæki
Texti og mynd: Vf.is/elg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Keppni1 dagur síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn2 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins
-
Markaðurinn1 dagur síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun18 klukkustundir síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanRummo-pasta komið á matseðil skóla í Hafnarfirði




