Freisting
Ferðin matarkistan Breiðafjörður
Samstarf félagsins Matur-Saga-Menning og bænda í Dalabyggð og Reykhólahreppi.
Já þegar við komum að Nýp, eftir hádegisverðinn á Stað í Reykhólasveit hófum við strax undirbúning, því ekki var langur tími til stefnu.
Við byrjuðum fyrst á að laga Skonsuclub horn, (en áður en við lögðum af stað hafði Venni bakað nokkrar skonsur 12 tommu ), og smurðum við þær með smjöri, blaðsalati úr garði frúarinnar og reyktum laxi svo kom önnur skonsa og á hana var lagt tómat og agúrkusneiðar og svo þriðja skonsan ofan á coctailpinnum stungið í og skorið í báta og raðað á bakka og sent að Þurranesi en þar átti þetta að vera snakk þegar hópurinn kæmi úr göngunni og skolað niður með mysudrykk.
Næst var það kvöldverðurinn og átti að tjalda öllu sem sveitin hafði upp á að bjóða og var eftirfarandi matseðill í boði:
Snakk
Fjallagrasakex heimabakað,djúpsteikt saltfiskroð og Harðskafi á flatköku
Drykkur lagaður úr Rabbabara, hrásykri, mysu og eplasafa
Aðalréttur
Hvannarrótarlamb og grilluð lambalæri vafin hvönn, skorið fyrir, borið fram með nýjum kartöflum velt upp úr dilli og smjöri, rótargrænmeti bakað í eigin safa, heitri krækiberjalambasósu og kaldri Bláberjasósu
Desert
Bláberjaskyrkaka með ferskum bláberjum og þeyttum rjóma
Nánast allt hráefni af bæjunum í kring grænmeti, kryddjurtir og ber frá Nýp, frá Höllu Steinólfsdóttur á Ytri Fagradal kom lambakjötið góða, en hún beitir lömbum á hvönn út í eyjunum og rest kom frá Þurranesi.
Var fólk mjög ánægt með matinn og vorum við félagarnir klappaðir upp svo mikil var ánægjan.
Eftir matinn tók kórinn Vorsól lagið og söng nokkur lög fyrir hópinn við góðar undirtektir og í lokinn tók hinn þekkti danski söngvari Ole Heedegard lagið og setti punktinn yfir I-ið á kvöldinu. Fóru allir sælir og mettir að Þurranesi til næturgistingar.
Sunnudagur
Morgunmatur í Þurranesi eins og fyrri morgun, að honum loknum fór hópurinn í skoðunarferð þar í nágrenninu undir leiðsögn Fagradalsbænda og skyldu koma að Nýp til hádegisverðar um eitt leitið.
Matseðill var:
Breiðfirsk skeldýrasúpa ( kræklingur, hörpuskel, rækjur, þorskur, flundra og flugfiskur ) með grænmeti að hætti Júlíu ( julienne ) og heimabakað brauð að hætti ábúenda að Nýp,
Ostbakki með úrval osta úr Búðardal og heimagerðar bláberjasultu,krækiberjahlaupi og rifs og hindberjasulta.
Og var engin breyting á, gestirnir yfir sig ánægðir með allt viðurgjörningi, viðmóti, og hlýju frá fólkinu í Skarðssveit og Stað í Reykhólasveit.
Kræklingurinn kom frá Bergsveini á Gróustöðum og þess skal getið að þeir tveir síðartöldu eru nýbúar í Breiðafirðinum.
Þá var tími kominn á að brenna í bæinn og ákváðum við að stoppa á leiðinni í Hyrnunni í Borgarnesi og pöntuðum við báðir djúpsteiktan fisk og franskar og fannast mér hann ansi góður en þá sagði Venni að fiskurinn hefði verið betri í Búðardal á fimmtudaginn var, svo var brunað í bæinn og þessari lærdómsríku og skemmtilegu helgi lokið.
Fleira tengt efni:
02.09.2008
Ferðin matarkistan Breiðafjörður – Fyrri hluti
![](https://veitingageirinn.is/wp-content/uploads/2018/02/veitingageirinn.png)
-
Keppni1 dagur síðan
Sigurvegarar í Íslandsmóti matvæla- og veitingagreina 2025 – Myndaveisla
-
Keppni5 dagar síðan
Björt framtíð í íslenskri matargerð – Matreiðsla, framreiðsla, kjötiðn og bakaraiðn í brennidepli á Íslandsmótinu um helgina
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Kokkur(ar) óskast til sumarstarfa á lítið sveitahótel
-
Frétt2 klukkustundir síðan
Sviðasulta og svínasulta valda sýkingum: Veisluþjónusta án starfsleyfis
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðan
Rafn Heiðar Ingólfsson tekur við sem veitingastjóri Olís – Rafn Heiðar: Cuisine.is verður óbreytt – gæluverkefni sem fær nægan tíma
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðan
Tólf nemendur í matartækni hjá VMA
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Ert þú næsti Bocuse d´Or keppandi Íslands? Umsóknarfrestur er til 1. mars 2025
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðan
Veitingastaðir framtíðarinnar einblína á starfsfólkið