Vertu memm

Markaðurinn

Fastus hefur hafið sölu á Nitril einnota hönskum frá Frans Mensch

Birting:

þann

 

Nitril hanskarnir eru mun þægilegri en latex og vinyl hanskarnir, þú getur pantað sýnishorn þér að kostnaðarlausu með því að senda tölvupóst á gunnhildur [hja] fastus.is.

Hanskarnir fást í small, medium, large og extra large.

Hanskarnir kosta 685.- kr. (m/vsk) en í hverjum pakka eru 100 hanskar.

Síaukið ofnæmi fyrir Latex hefur aukið notkun á Nitril hönskum á heimsvísu, sérstaklega í matvælaframleiðslu því notkun í matvælaframleiðslu getur smitað matinn af Latex prótínum sem inniheldur þekkta ofnæmisvaka. Í náttúrulegu gúmmíi eru sextán mismunandi latex ofnæmisvakar.

Svo virðist sem síendurtekið áreiti latex ofnæmisvaka framkalli ofnæmisviðbrögð hjá viðkvæmum einstaklingum. Þannig virðist tíðni ofnæmisins vera í beinu samhengi við aukna notkun latex afurða og magn latex ofnæmisvaka í vörunni. Þekktasta áreitið er bein snerting en einnig er vitað að ofnæmisvakarnir geta borist með andrúmslofti. Sýnt hefur verið fram á að ofnæmisvakarnir geta smitast yfir í matvæli sem hafa verið í snertingu við latex.

Þeir sem verða fyrir óþægindum í snertingu við latex geta ýmist fengið frumubundið ónæmissvar (snertióþol) eða mótefnabundið ofnæmissvar (bráðaofnæmi). Það síðarnefnda er einnig kallað latexofnæmi. Ofnæmi eru viðbrögð ónæmiskerfisins við framandi efni (ofnæmisvaka) sem berst inn í líkamann.
Stundum geta þessi viðbrögð verið svo sterk að fram komi bráðaofnæmi og alvarlegasta afleiðing þess er ofnæmislost sem getur leitt til dauða.
Niðurstöður úr erlendum könnunum sýna að tíðni latexofnæmis meðal heilbrigðisstarfsmanna er frá 10-17 af hundraði.

Auglýsingapláss

Snertióþol er frumubundin ónæmisvörun, sem lýsir sér með útbrotum, roða og kláða sem getur komið fram allt að 12-36 klst. eftir snertingu við latexvörur.
Talið er að í Bandaríkjunum séu um 7 milljónir manna haldnir latex ofnæmi. Í nokkrum ríkjum eins og Oregon, Rhode Island og Arizona hefur notkun á latex hönskum í matvælafyrirtækjum verið bönnuð.

Stuðst var við upplýsingar frá Astma- og ofnæmisfélaginu sjá nánar www.ao.is/?c=webpage&id=85

Til að sporna við auknu latexofnæmi mælum við því með notkun Nitril einnota hanska.

Heimasíða Fastus: www.fastus.is

 

Auglýsingapláss

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið