Vertu memm

Freisting

Ert þú að bjóða upp á eitraðan krækling?

Birting:

þann


Eðal kræklingur
Úr myndasafni
Myndin tengist fréttinni ekki beint

Á þriðjudaginn 29. september 2009 klukkan 15°° verður fræðslufundur á vegum MAST en lagt verður áhersla á kræklingin og allt sem við kemur eiturþörungar og myndun þörungaeiturs í kræklingi.  Sá möguleiki er fyrir hendi að boðinn sé fram kræklingur á veitingahúsum sem getur haft mjög skaðleg áhrif á heilsu fólks.

Markmið fundarins er að vekja athygli þessara aðila á að bera fram krækling frá áreiðanlegum aðilum sem fengið hafa rétta leyfisveitingu, þ.e.a.s. tryggt hefur verið að sá kræklingur hafi ekki verið á eiturþörungasvæðum þegar hann var tekinn upp.

Miðað við þær mælingar sem liggja fyrir hafa eiturþörungar á algengum skelfisksvæðum verið vel yfir viðmiðunarmörkum yfir sumarmánuðina.

Hér að neðan ber að líta fundarboðið í heild sinni:

Fræðslufundir MAST hefja göngu sína að nýju þriðjudaginn 29. september 2009 kl. 15:00 – 16:00 þegar eiturþörungar og myndun þörungaeiturs í kræklingi verða til umfjöllunar. Á fundinum verður farið yfir tegundir eiturþörunga við Ísland, myndun þörungaeiturs í kræklingi og áhrif á heilsu, eftirlit með þörungaeitri og leyfisveitingar.

Stærsti áhættuþátturinn við neyslu kræklings og annars skelfisks er þörungaeitur. Kræklingur tekur til sín fæðu, s.s. svifþörunga með síun úr sjónum en af þeim þúsundum tegunda svifþörunga sem þekktir eru í sjó geta nokkrar tegundir valdið eitrun í skelfiski sem er hættuleg neytendum.
 
Neysla kræklings getur verið varasöm ef ekki væri haft eftirlit með veiði- og ræktunarsvæðum og framleiðslu hans. Eftirlitið felst í könnun á heilnæmi kræklings með tilliti til mengunarefna, örvera og þörungaeiturs. Síðan 2005 hefur MAST vaktað nokkur hafsvæði m.t.t. eitraðra svifþörunga í samvinnu við Hafrannsóknastofnunina. Sýnt hefur verið fram á samband milli eiturþörunga í sjó og magns eiturs í skelfisknum og greindust eiturþörungar t.a.m. yfir viðmiðunarmörkum í Hvalfirði, Breiðafirði og Eyjafirði á vissum tímabilum sl. sumar.

Fyrirlesarar:

  • Hafsteinn Guðfinnsson, sérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun
  • Þór Gunnarsson, sérfræðingur hjá Matvælastofnun
  • Dóra S. Gunnarsdóttir, fagsviðsstjóri hjá Matvælastofnun

Fræðslufundurinn verður haldinn í umdæmisskrifstofu Matvælastofnunar í Reykjavík að Stórhöfða 23. Gengið er inn í húsnæði MAST að norðanverðu (Grafarvogsmegin). Fundirnir verða áfram á sínum stað síðasta þriðjudag hvers mánaðar frá kl. 15-16 yfir vetrartímann og auglýstir á vef Matvælastofnunar.

Allir velkomnir!

Heimasíða MAST:  www.mast.is

Mynd: Smári Valtýr Sæbjörnsson

/Smári

 

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Click to comment

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið