Starfsmannavelta
Einföldun í rekstri hjá Ölgerðinni
Rekstur Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar verður einfaldaður og hluta lagerstarfsemi og dreifingar verður útvistað til að takast á við vaxandi umsvif og auka sveigjanleika. Ölgerðin verður frá og með næstu mánaðamótum alhliða drykkjarvörufyrirtæki en allur annar innflutningur verður á sama tíma hjá dótturfyrirtækinu Danól.
„Starfsemi okkar hefur margfaldast á undanförnum árum og síkvikt viðskiptaumhverfi kallar á að fyrirtæki leiti allra leiða til að gera hlutina betur, auka möguleika til vaxtar, hagræða og styrkja sig enn frekar á markaði. Fyrirtæki sem fylgist ekki með breytingum og aðlagar sig ekki að nýjum aðstæðum verður í vanda og við höfum óhikað tekið ákvarðanir sem þessar til að halda okkur í fremstu röð,“
segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri í fréttatilkynningu frá Ölgerðinni.
„Ölgerðin er og hefur verið leiðandi á sínu sviði sem afburða drykkjarvörufyrirtæki í 106 ár og með þessum breytingum verður fyrirtækinu gert kleift að styrkja enn frekar eigin framleiðslu og innflutning á drykkjarvöru. Danól verður með alla matvöru, snyrti- og sérvörur, ásamt vörum til stóreldhúsa og er óhætt að fullyrða að einfaldara skipulag mun skerpa fókusinn og losa um vaxtahömlur,“
segir Andri Þór.
Auk einföldunar í rekstri verður hluta lagerstarfsemi og dreifingar útvistað og vegna þessara breytinga fækkar starfsmönnum um 25 hjá Ölgerðinni, þvert á öll svið fyrirtækisins, en hluta þeirra býðst að taka við störfum í tengslum við útvistunina.
Starfsemi Danól verður í framhaldi flutt í húsnæði gegnt Ölgerðinni á Fosshálsi en þessar breytingar og útvistun á lagerstarfsemi og dreifingu gera Ölgerðinni kleift að vaxa og auka enn frekar vöruþróun eigin vörumerkja.
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Girnilegt camembert jólatré með döðlu og pekan krönsi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðan
Mikil uppbygging framundan á Hofsstöðum – Veitingastaðurinn með eigin framleiðslu og hráefni úr heimabyggð
-
Markaðurinn4 dagar síðan
Ekta rjómaís með hvítu súkkulaði og piparkökum – Fullkominn á veisluborðið yfir hátíðarnar
-
Frétt2 dagar síðan
34 veitingastaðir birtu matseðil og annað kynningarefni bara á ensku
-
Markaðurinn1 dagur síðan
Wolt “wrapped” samantektin – Það sem Íslendingar pöntuðu á árinu 2024
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Kalkúnaveisla með öllu tilheyrandi
-
Markaðurinn3 dagar síðan
Uppskrift – Fylltar kjúklingabringur með eplum, Dala höfðingja og rósmarín-hlynsírópsgljáa
-
Frétt1 dagur síðan
Innköllun á sviðasultu frá Kjarnafæði