Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Breskt par opnar íslenskan kaffibar á Englandi
Chris og Lisa Whitear komu fyrst til Íslands árið 2009 og er óhætt að segja að þau hafi fallið fyrir landi og þjóð. Þau hafa komið aftur á hverju ári og hafa nú ákveðið að ganga enn lengra og opna íslenskan kaffibar í Portsmouth.
Við komum fyrst til Íslands árið 2009. Þetta var svo óhefðbundinn staður og við urðum bara ástfangin
, segir Lisa í samtali við pressan.is.
Við höfum farið aftur á hverju ári síðan og tekið fleiri vini með og við sögðum öll, af hverju eru ekki kaffibarir á Bretlandi?
Barinn heitir 101 Reykjavík og prýðir sjálf Hallgrímskirkja merki hans. Að sögn Chris var ætlun þeirra að hafa staðinn „huggulegan“, í hans eigin orðum, sem hann skilgreinir sem hlýlegan og notarlegan.
Þannig viljum við að fólki líði hér
, segir hann.
Séreinkenni 101 eigi að vera hin íslenska kaffibarastemmning þar sem fólk af öllum toga hittist; pípulagningarmenn, ljóðskáld og viðskiptajöfrar.
Á staðnum er hægt að gæða sér á ýmsum íslenskum kræsingum og má þar nefna hafragraut, þorsk, pylsur og skyr. Þá er einnig boðið upp á Reyka vodka og brennivín og ýmsa kokteila með nöfnum á borð við Bláa lónið, norðurljós og Eyjafjallajökull. Einnig er boðið er upp á íslenskan bjór og segir Chris að Steðji hafi notið sérstaklega mikilla vinsælda meðal gesta.
Myndir af íslensku landslagi hanga á veggjum fá gestir að njóta íslenskrar tónlistar í þokkabót. Á fimmtudögum eru svo haldin svokölluð „þing“ þar sem, til að mynda, íslenskir höfundar kynna bækur sínar og íslenskar heimildarmyndir eru spilaðar, að því er fram kemur á pressan.is.
Frekari upplýsingar má finna á heimasíðu 101 Reykjavík, 101reykjavik.co.uk
Myndir: af twitter síðu 101reykjavik.
-
Keppni2 dagar síðanKosning hafin, hver hlýtur titilinn Kokkur ársins 2026?
-
Keppni2 dagar síðanFimm tryggja sér sæti í úrslitum Kokk ársins eftir harða forkeppni
-
Keppni2 dagar síðanLesendakönnun, hver verður Grænmetiskokkur ársins 2026?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun23 klukkustundir síðanKokteilagerðin færir kokteilalistina heim til fólks
-
Keppni2 dagar síðanFimm keppendur takast á um titilinn Grænmetiskokkur ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLokahóf Kokks ársins 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanElias Johansson tekur við eldhúsinu á Síldarkaffi í sumar
-
Frétt3 dagar síðanNý stjórn SVEIT tekin við eftir vel sóttan aðalfund














