Freisting
Best-West tour 2009
Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit er orðinn sögustaður eftir þættina um Georg Bjarnfreðarson og félaga. Sverrir Halldórs skoðar hér einn af leikmunum Dagvaktarinnar. Morðvopnið, pannan sem Gugga fékk í hausinn, en pannan er notuð til að steikja hamborgara.
Var með seinni skipunum í morgunmatinn, ekki laust við að kallinn væri hálfdasaður eftir gærdaginn, flott hlaðborð hjá þeim Núpsbræðrum, heimlöguð kindakæfa, lambasteik og það sem kom mér mest á óvart en það var svínarúllupylsa frá þeim Kjarnafæðismönnum kjötálegg í háum gæðum og allt annað að borða en þessar búðingspylsur sem alltaf er verið að reyna að troða í okkur, gekk ég vel nærður frá borði tilbúinn í átök dagsins.
Fyrsti stoppustaður var Þingeyri og var farið fljótt yfir sögu og haldið áfram og keyrt og keyrt og keyrt, og loksins komu við á Bíldudal, spurði ég þá Sigga hvort við gætum fengið okkur Bíldudals-grænar, en hann sagði það löngu hætt að fást, nú væri þetta bara einhver hátíð sem gengi undir þessu nafni, eftir að hafa keyrt um plássið fundum við lítinn veitingastað sem heitir Vegamót og fórum við inn í smá næringu.
Arnarfjarðarsælan
Ég pantaði mér sjávarréttarsúpu í forrétt og Arnarfjarðarsælu í aðalrétt, Siggi pantaði sér bacon og egg og leit það vel út, einnig var súpan prýðileg en svo kom áfallið, Arnarfjarðasælan reyndist að 90 % vera brauð og hrísgrjón með örfáum rækjum sem sennilega hafa dottið af einhverjum öðrum rétti í eldhúsinu, ég upplifði enga sælu við að borða þennan rétt.
Vorum ekki búnir að keyra lengi er gellur í Sigga sjáðu, sjáðu þarna er hann sjálfur eins og fuglinn frjáls út á miðri götu í náttbuxum og jesusskóm hinn eini sanni Nonni Bello ( Jón Kr Ólafsson) að blaðra við einhvern og stoppar alla umferð um tíma, Siggi spyr hvort við ættum að kíkja á plötusafnið hjá honum, ég færist undan því og spyr á móti hvort við ætluðum ekki á Patró í dag og fann maður hvernig fóturinn var alltaf þyngri og þyngri á bensíngjöfinni þvi ég hafði sagt gullorðið Patró.
Var farið hratt yfir á Tálknafirði og stefnan tekin á Patró, Siggi setti Stuðmenn í geislaspilarann og söng hástöfum með, en stoppaði svo allt í einu í miðju lagi og sagði, heyrðu ég man einn brandara og sagði hann, þá var tilgangi ferðarinnar náð, en hann var að ná Sigga í gamla gírinn með sumar á sýrlandi og bröndurum eins og hann var á Sögu í den.
Og það var á hreinu frá fyrstu stundu að hann hefur enn sterkar taugar til staðarins, og hófst nú kynning á plássinu og ekki leið á löngu þar til hausinn á mér gat ekki móttekið þetta mikla magn upplýsinga og nikkaði ég bara annað slagið til að hann yrði ekki var við að ég næði ekki öllu sem hann sagði því ánægjan af að sjá hann lýsa hinu og þessu var óborganleg þvílíkir tilburðir.
Eftir daggóðan tíma bendir Siggi á ljótan og niðurnýddan bragga og segir þarna er skrímslasetrið og að við færum þangað inn, ég færðist undan því að fara inn í þennan kumbalda, hann gæti hrunið þá og þegar, en lét til leiðast og er maður kom inn var eins og maður kæmi í annan heim, mikið kom það manni á óvart, og verðið þið bara að fara vestur til að upplifa það sjálf.
Hittum við þar nokkra innfædda og allir þekktu þeir Sigga Einars, en fyndið þótti mér umræðuefnið það var ekki icesave reikningar heldur hvað vegakerfið væri lélegt og er við Siggi spurðum hvar þeir vegir væru, var svarað með þótti, þið eigið eftir að keyra þá, og með það í nesti kvöddum við Patró og tóku til við að leita að þessu vondu vegum keyrðum í Flókalund áðum þar smástund endurnýjuðum bensínbirgðir í flugstjórnarklefa og héldum að næsta náttstað en þar ætluðu félagarnir að vera starfsmenn í þjálfun eina kvöldstund, já rétt tilgetið við vorum komnir á Hótelið í Bjarkalundi, enginn Georg en afleysingarhótelstjóri til staðar sem tók á móti okkur.
Hamborgarinn góði, steiktur á morðvopninu
Tékkuðum okkur inn og inn á herbergi með dótið, farið fram í veitingasal enginn Ólafur þar, en bráðmyndarleg dama í staðinn og kynnti fyrir okkur hvað sé í boði, réttir dagsins séu hótelsúpa með rjóma, steiktur silungur og Hamborgarahryggur og svo var grillseðill, ég ákvað að fá hótelsúpuna og Hamborgarhrygginn en Siggi pantaði Hamborgara, og það get ég sagt ykkur að eins og maturinn á Bíldudal olli vonbrigðum, þá stóð maturinn í Bjarkalund fyllilega undir væntingum og gott betur, og fór ég vel nærður og sæll inn á herbergi til að eiga nokkra stund með Walt Disney á meðan ætlaði Siggi að taka kvöldvaktina í koníaksstofunni, segi frá því í næsta pistil.
Fleira tengt efni:
-
Markaðurinn2 dagar síðan
Rótgróið bakarí / verslun og kaffihús til sölu eða leigu
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Frakkar sigruðu Bocuse d’Or 2025 – Sindri Guðbrandur í 8. sæti
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sjáðu keppnisrétti Sindra hér – Myndir
-
Bocuse d´Or2 dagar síðan
Sindri Guðbrandur hóf keppni í Bocuse d´Or í morgun – Bein útsending
-
Bocuse d´Or5 dagar síðan
Myndir: Það styttist í herlegheitin – Sindri keppir fyrir Íslands hönd 27. janúar í Bocuse d´Or
-
Keppni3 dagar síðan
Daníel Oddsson á Jungle hreppti Bláa Safírinn 2025 – Myndaveisla
-
Bocuse d´Or4 dagar síðan
Sindri keppir í Bocuse d´Or
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðan
Kampavínsmarkaður í kröppum dansi: Sala hríðféll á árinu 2024