Uppskriftir
Lifrarsteik
Lifrarsteik (6 m)
1 kg lifur ( af lambi eða kálfi)
½ l vatn
100 gr góður mör eða flesk
½ l mjólk
½ matsk. salt, pipar
tólg
2-3 matsk. hveiti
Aðferð:
Lifrin er þvegin og lögð í vatn eða undanrennu yfir nóttina. (til þess að draga út blóð) þá er lifrin tekin upp, þerrið vel og stungin hér og þar með stórri nál eða oddhvössum hníf, og mörnum sem skorin er í ræmur, smeigt inn. Lifrin er þá brúnuð og vatninu sjóðheitu smáhellt í pottinn við hliðina á lifrinni.
Soðið í 10 – 15 mín. Mjólkin er flóuð og henn bætt í þegar suðan er hálfnuð, lifrin er skorin í sneiðar og lögð upp þannig að hún leki út sem heil, sósan jöfnuð og henni hellt yfir. Varast skal að sjóða lifur of lengi því hún harðnar við suðuna.
Uppskrift – Sólveig Jónasdóttir frá Húsavík. Sólveig lærði í Húsmæðraskólanum á Laugum frá 1944 til 1945.
Birt með leyfi: Helgi Fannar Valgeirsson, matreiðslumaður.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun13 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Markaðurinn13 klukkustundir síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni15 klukkustundir síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan




