Starfsmannavelta
Veitingastöðum lokað í Leifsstöð
Opinn kynningarfundur vegna útboðs Isavia á rekstri tveggja veitingastaða í Leifsstöð verður haldinn í Hörpu í dag. Um er að ræða tvö ný veitingarými á annarri hæð í norðurbyggingu flugstöðvarinnar.
Kynnt er að þremur veitingastöðum í Leifsstöð verði lokað samfara þessum breytingum; Nord, Joe and the Juice og Loksins bar. Þá áformi Isavia að opna nýjan sölustað fyrir samlokur, kaffi og fleira slíkt, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Í auglýsingu á vef Isavia kemur m.a. fram:
„Veitingastaðirnir tveir verða með ólíku sniði og nálgun en reknir af sama rekstraraðila. Mikilvægt er að rekstraraðilar sem taka þátt í útboðinu hafi víðtæka reynslu af rekstri veitingahúsa og veiti hágæðaþjónustu í lifandi umhverfi.“
Viðtal – Horfðu á 13 ára gamalt vídeó
Fyrir áhugasama, þá er hægt að lesa og horfa á hér þegar veitingageirinn.is (freisting.is) kíkti í heimsókn við opnun NORD árið 2009.
Mynd: Isavia.is
-
Markaðurinn4 dagar síðanRekstur og húsnæði til sölu
-
Markaðurinn4 dagar síðanVilja spara fyrirtækjum tíma og kostnað
-
Frétt7 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt7 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFræðslunámskeið fyrir veitingafólk um framleiðslu, kokteilagerð og klaka
-
Frétt6 dagar síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
-
Keppni10 klukkustundir síðanSiggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun19 klukkustundir síðanNý bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn



