Vertu memm

Markaðurinn

Risa Eitt Sett er lent í verslunum

Birting:

þann

Risa Eitt Sett

Það er ekkert lát á góðum fréttum fyrir súkkulaðiunnendur og nú hefur Nói Síríus sett á markað Risa Eitt Sett með lakkrísbitum. Þessi nýjung hefur hlotið góðar móttökur og er nú fáanleg í öllum verslunum.

Silja Mist Sig­ur­karls­dótt­ir, markaðsstjóri Nóa Síríus seg­ir það mikil gleðitíðindi að loks­ins sé Eitt Sett komið í stórt stykki.

„Stykkið sam­an­stend­ur af rjómasúkkulaði og stór­um lakkrís-bitum og hrein­lega bráðnar í munni. Fyrr á ár­inu kom­um við með Eitt Sett í bit­um og Eitt Sett páska­egg sem seld­ust meira en nokk­ur vara, viðtökur sem fóru fram úr okkar björtustu vonum,“

segir Silja og bætir við:

„Við þurft­um að end­ur­skoða all­ar áætlan­ir vegna mikillar eftirspurnar. Í kjöl­farið fór­um við að skoða fleiri mögu­leika fyrir ólík til­efni og sú vinna skilaði meðal annars þessari vöru. Eftir að við höfðum þróað hið fullkomna hlut­fall milli súkkulaðis og lakk­ríss ákváðum við að setja hana á markað og viðtökurnar hafa verið þannig að það lítur út fyrir að varan verði í vöruvali til frambúðar.“

Það er kannski ekki að undra góðar viðtökur því Eitt Sett hefur lengið verið eitt eftirlætis sælgæti þjóðarinnar. Það var fyrsta fjöldaframleidda sælgætið á Íslandi sem sameinaði lungamjúkan lakkrís og ljúffengt rjómasúkkulaði.

Nú fæst Eitt Sett í þremur útgáfum: Risa Eitt Sett súkkulaðistykkið, Eitt Sett bitar í endurlokanlegum pokum og svo auðvitað klassíska Síríuslengjan með lakkrísborðanum

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið