Freisting
Nýr staður Nauthóll bistro
|
|
|
|
Nú nýlega opnaði nýr Nauthóll á mjög svipuðum stað og sá gamli var, en þessi staður er mun bjartari með mikið gluggarými og verður gaman að vera þarna í sumar, einnig er veislusalur sem nefndur hefur verið Sjónarhóll.
|
|
|
|
Það er enginn annar en Jóhannes Stefánsson kenndur við Múlakaffi sem rekur þennan stað og hefur fengið Eyþór Rúnarsson meðlim í kokka- landsliðinu sem yfirmatreiðslumann staðarins.
Crew 1 frá Freisting.is var þess aðnjótandi að vera boðið í smakk nú í nýliðinni viku og kemur hér sú reynsla sem við upplifðum.

Tvíreykt lambacarpaccio
ristaðar möndlur, piparrótardressing, klettasalat
Þarna saknaði ég rosalega piparrótarbragðins til að vinna upp á móti reykbragðinu,
kjötið var mjög gott

Gulrótarsúpa með kókos og engifer
grísk jógúrt og þurrkuð trönuber
Besta gulrótarsúpa sem ég hef smakkað samspil súpunnar, jógúrtsins og trönuberjana glæsileg


Langtímaeldaður og rifinn lambaskanki
kartöflumús,gljáð rótargrænmeti og dill
A must to try
|
|
|



Eftirtektarvert er að staðurinn fer sínar eigin leiðir í uppsetningu og framsetningu á réttum matseðilins og er það frá mínu sjónarhorni bara jákvætt og eykur breidd í flóru veitingahúsa.


Hef einnig verið þarna í hádeginu og fengið rauðsprettu í raspi með því besta remúlaði sem ég hef smakkað á Íslandi.
Þjónustan er fumlaus og alúðleg án þess að vera væmin.
Við hjá Freisting.is óskum þeim Nauthóls mönnum til hamingju með staðinn og ósk um gott gengi.
Myndir: Matthías
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanSiggi Hall, Guðmundur og Þormóður á Kipinä
-
Markaðurinn7 dagar síðanDanól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanKynning á Antonius, úrvalskavíar sem hefur heillað Michelin-kokka
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýtt kaffihús opnað við Fjöruböðin á Hauganesi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanMichelin-stjörnukokkurinn Max Cekot opnar nýjan veitingastað í Riga
-
Markaðurinn4 dagar síðanSparaðu með júlítilboðum Nathan
-
Markaðurinn3 dagar síðanGlæsileg tilboð á lamba-, grísa- og kjúklingavörum í júlí
-
Vín, drykkir og keppni2 dagar síðanJapan orðið stærsti innflytjandi bjórs til Ástralíu










