Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Café Adesso opnar útibú

Birting:

þann

Eggert Jónsson og Elis Árnason

Eggert Jónsson og Elis Árnason

Ekki fóru þeir þó langt, þeir héldu sig í sömu byggingu en í hinum enda hússins og á jarðhæðinni, um er að ræða kaffihúsið í gryfjunni í vesturhluta Smárarlindar.

Þeir félagar Elís Árnason og Eggert Jónsson hafa verið að gera góða hluti á Cafe Adesso í austurhluta Smáralindar rétt við Vetrargarðinn, en með opnunni á útibúinu eru þeir á báðum hæðum og í báðum endum.

Það verður minna úrval á boðstólunum til að byrja með en svo ætla við bara að láta traffikina stjórna því hvað er í boði, sagði Eggert aðspurður um rekstur á nýja útibúinu og eins sagði hann ef eitthvað vantar þá eru 250 metrar á milli staðanna.

Blaðamaður smakkaði á tertu lagaðari af meistaranum sjálfum og var í henni hnetubotn, passion mousse, kókos musse og ítalskur marengs allt lagskipt og get ég sagt ykkur að það var eins og maður svifi um það frískandi var hún á  bragðið óhætt að segja að þarna er fagmennska í hávegum höfð.

Óskum við á Freisting.is þeim til hamingju með stækkunina með von um gott gengi.

† 1956-2015 | Sverrir er matreiðslumeistari, en hann lærði matreiðslu á Hótel Sögu og var við nám í hótelstjórnun í Álaborg. Hann hefur starfað mjög víða, m.a. á veitingastöðum í Englandi og Danmörku. Einnig á stöðum hér heima, m.a. Hótel Sögu, Óperu, Holliday Inn, Ránni og Þotunni í Keflavík, Fossnesti á Selfossi. Sverrir er beinskeyttur, opinskár og harðsoðinn penni.

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið