Vertu memm

Viðtöl, örfréttir & frumraun

Goðsögnin Sverrir Halldórs

Birting:

þann

Sverrir Þór Halldórsson matreiðslumeistari

Sverrir Þór Halldórsson matreiðslumeistari

Goðsögnin Sverrir Halldórs hefur alið manninn erlendis í sumar, nánar tiltekið í Prag.  Hann hefur verið æðiduglegur að senda okkur ferðasögur af ferðum sínum á merkverða staði, bæði sögulega staði sem og veitingastaði.  Enn hver er maðurinn?

Til er ógrynni af sögum um Sverri, sem því miður fæstar eru prenthæfar.  Setningar eins og: „Má ég reka hann?“, „Stattu upp áður enn að einhver stígur á þig“ og „Helvítis Hor-kók“ eru setningar sem flestir þekkja.  Þessar sögur eru eins og eðalrauðvín, batna bara með árunum.

Hér verður stiklað á stóru varðandi nemahrellirinn.

  • Fyrst ber að nefna að Sverrir náði þeim áfanga að verða fimmtugur þann 2. maí sl.
  • Hann situr í stjórn Klúbbs matreiðslumeistara og klúbburinn hefur veitt honum Gordon Bleu orðuna.  Hann er þar að auki virkur í MATVÍS og situr í Nemaleyfisnefnd.
  • Hann var meðlimur í landsliði í matreiðslu árin 1990-1992 sem keppti í Luxembourg og Chicago.
  • Hann nam fræðin sín á Hótel Sögu árin 1974 til 1978.
  • Þaðan hélt hann til Lundúnarborgar á Hótel Savoy sem Chef de Partie og var þar frá 1979 til 1980.
  • Sama ár var förinni haldið til Danmerkur á Hótel Trouville í Hornbæk og nú sem Sous Chef.
  • Árið 1981 gerðist hann veitingastjóri á Bonaparte Club í Kaupmannahöfn.
  • 1982 til 1984 lærði hann Hótelstjórnun í Tækniháskólanum í Álaborg.
  • 1984 var haldið heim á leið og gerðist hann aðstoðaryfirmatreiðslumaður á hótel Sögu.
  • 1987 var Sverrir yfirmatreiðslumaður á Cafe Operu, sama ár aðstoðar- yfirmatreiðslumaður á hótel Holiday Inn.
  • Árið 1989 var haldið suður til Keflavíkur þegar hann gerðist yfirmatreiðslumaður á Ránni.
  • 1991 réð hann sig sem veitingastjóra á veitingastaðnum „Þotan“ í Keflavík.
  • Árið 1994 gerðist hann yfirmatreiðslumaður á KÁ Fossnesti.
  • 1997 var haldið suður til Keflavíkur aftur, enn þá sem Sous Chef í Officera Klúbbnum.
  • 1999 var hann ráðinn á KÁ hótel Selfoss sem yfirmatreiðslumaður.
  • Árið 2000 var enn og aftur haldið til Keflavíkur, en nú sem veitingastjóri á KÁ Flughótel í Keflavík.
  • Hann hefur setið í Fræðsluráði síðan 2003 og árið 2005 fór hann í tvígang til Malasíu að kynna Íslenskan fisk.

Hann hefur verið á sýningum í Kaupmannahöfn, London, Frankfurt, Berlin, Chicago, Hong Kong, Lyon & Kuala Lumpur og kynnt íslenzkan mat á Concorde Hotel og Sullivan County Community Colleges í New York fylki í Bandaríkjunum, Íslenska sendiráðið í London sem og í þjóðmenningahúsi og sendiráð Íslendinga í Kaupmannahöfn.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Podcast / Hlaðvarp

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið