Vertu memm

Vín, drykkir og keppni

Pítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi

Birting:

þann

Pítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi

Marta, sem rekur Pítuna í Skipholti, tekur á móti fyrstu sendingunni af Pítupils frá Stefáni hjá RVK Bruggfélagi.

Veitingastaðurinn Pítan í Skipholti hefur fengið sinn eigin bjór sem ber nafnið Pítupils. Bjórinn er klassískur pilsner sem RVK Bruggfélag hefur bruggað sérstaklega fyrir staðinn og verður eingöngu fáanlegur þar.

Fyrsta sendingin barst Pítunni nú í vikunni og tók Marta, sem rekur veitingastaðinn, á móti henni ásamt Stefáni frá RVK Bruggfélagi.

Að sögn Einars Arnar Sigurdórssonar hjá RVK Bruggfélagi, er samstarfið sprottið af góðum nágrannatengslum, en Pítan er staðsett hinum megin við götuna frá Tónabíói þar sem brugghúsið er til húsa.

Umbúðir bjórsins voru hannaðar af Valurvalur og prýðir teikning af Mörtu dósirnar.

Pítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi

Nýi Pítupilsinn skartar teikningu af Mörtu, sem stendur að rekstri Pítunnar.

Sérbruggaður bjór fyrir veitingastaði og hótel

Einar Örn segir að sérbruggun fyrir veitingastaði og hótel sé orðin ákveðin sérgrein hjá RVK Bruggfélagi. Fyrirtækið hefur meðal annars bruggað sérstaka bjóra fyrir Ramen Momo, Deplar Farm og The Reykjavík EDITION.

Markmiðið með slíkri framleiðslu er að bjórinn verði hluti af sérstöðu og upplifun hvers staðar. Bjórinn fær sitt eigið nafn, sérstakar umbúðir og bragðeinkenni sem falla að matnum og þeirri stemningu sem staðurinn vill skapa.

„Þannig fá staðirnir vöru sem gestir geta tengt beint við heimsóknina og finna ekki á hverjum öðrum bar,“

segir Einar Örn.

Með tilkomu Pítupils bætist Pítan í hóp þeirra veitingastaða sem bjóða gestum sínum sérbruggaðan bjór sem ekki fæst annars staðar.

Myndir: aðsendar

Almenn umfjöllun, víndómar og viðtöl, blandað ýmsum fróðleik um Ísland, mat, drykki og fleira því tengt.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið